Það getur verið freistandi að fá sér einn ef ekki nokkra drykki þegar farið er út á lífið. Fatahönnuðurinn og fína kryddið Victoria Beckham er búin að koma sér upp furðulegum ávana til þess að koma sér hjá drykkju en um leið halda sér vakandi.
Frú Beckham er sögð vilja vakna fersk á morgnana og því er áfengi ekki málið fyrir hana. The Sun greinir frá því að hún japlar á kaffibaunum í stað þess að drekka áfengan drykk. Elsta syni hennar, Brooklyn Beckham, finnst þetta uppátæki móður sinnar ógeðslegt.
Fatahönnuðurinn er hins vegar þekktur fyrir að láta einungis ofan í sig hollan mat. Vinur hennar sagði frá því í fyrra að hún panti sér stundum bara spínat með salti auk þess sem hún er sögð borða lax á hverjum degi fyrir húðina. Kaffibaunatrixið er því örugglega meinhollt, að minnsta kosti skárra en mikið magn af áfengi.