Christina Basil er þyngri en grennri

Christina Basil er hætt að æfa til þess að verða …
Christina Basil er hætt að æfa til þess að verða mjó. skjáskot/Instagram

Christina Basil er ein af þeim sem hélt að lág tala á vigtinni væri ávísun á það að vera í góðu formi. Hún komst að því að hún hafði rangt fyrir sér.

Basil setti sér það markmið að vera 55 kíló, þegar hún náði þeirri tölu var hún ekki ánægð. Hún var byrjuð að lyfta léttar og missti styrk. Hana svimaði einnig á æfingum þar sem hún var að borða of lítið. Þessi markmiðstala á vigtinni var að koma í veg fyrir að hún næði að bæta líkamlega hreysti sína. 

Á myndinni að ofan er Basil þyngri á myndinni til hægri en á strandarmyndinni til vinstri samt sem áður hefur hún aldrei verið orkumeiri, grennri og léttari á sér. Hún segir að þetta hafi truflað hana fyrir ári en það gerir það ekki lengur. „Ég æfði til þess að vera grönn. Nú æfi ég til þess að vera sterk,“ skrifaði Basil á Instagram

Christina Basil náði ekki að styrkja sig þegar hún var …
Christina Basil náði ekki að styrkja sig þegar hún var að reyna að halda sér í 55 kílóa tölunni. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál