Það er ekki langt síðan uppsetur voru aðalmagaæfingarnar en það hefur breyst og fólk alltaf í leit að nýjum og skemmtilegum magaæfingum. Women's Health birti myndband með tíu æfingum sem taka samtals níu mínútur og eru áhrifameiri en hin venjulega magaæfing.
Ástæðan fyrir því að þessar æfingar skila ef til vill meiri árangri en að liggja á dýnu og reisa höfuð og axlir eða allan efri búk upp er brennslan sem fylgir þeim. Æfingarnar þjálfa ekki bara magavöðvana heldur fer brennslan af stað þegar fólk gerir æfingarnar.
Plankaæfingar hafa verið vinsælar síðustu ár og eru margar af æfingunum flóknari tilbrigði af venjulegum planka, hliðarplanka og öfugum planka.