Fimm á dag ekki nóg fyrir frú Trump

Melania Trump hugsar vel um mataræðið.
Melania Trump hugsar vel um mataræðið. mbl.is/AFP

Melania Trump hugsar vel um heilsuna en er ekki hrifin á tískumegrunarkúrum. Sem fyrrverandi fyrirsæta er hún vön að passa upp á það sem hún borðar og fer sér ekki óðslega í sætindunum. 

Á meðan margir eiga fullt í fangi með að borða fimm ávexti á dag reynir Trump að borða sjö. Hún leggur upp með að ávextirnir gefi henni þau vítamín sem hún þarf til þess að halda húð sinni og hári í góðu standi. 

Hún sleppir morgunkorninu á morgnana og fær sér oft annaðhvort næringarríkan drykk eða trefjaríkan hafragraut. „Ég tek A-, C- og D-vítamín til þess að hafa húð mína, hár og neglur heilbrigðar,“ sagði hún árið 2011. Vatn, rakakrem og svefn eru líka lykillinn að útliti forsetafrúarinnar. 

Þrátt fyrir að huga vel að heilsusamlegu mataræði leyfir hún sér einstaka sinnum sætindi. „Ég elska súkkulaði og ís og fæ mér það einstaka sinnum,“ sagði Trump og segir það í lagi svo lengi sem maður borðar hollan mat á móti. Hún heldur sig við hollari kostinn og fær sér stundum dökkt súkkulaði og Diet Coke. 

Melania Trump heldur línunum í lagi ekki bara með hollu mataræði heldur hreyfir hún sig líka. Hún er sögð ganga um með ökklalóð heima hjá sér auk þess sem pilates og tennis hafa verið í uppáhaldi.

Melania Trump.
Melania Trump. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál