Heldur áfram að vinna með vöfflurnar

Beyoncé er komin með nýjan hárstíl.
Beyoncé er komin með nýjan hárstíl. skjáskot/Instagram

Það er kominn tími til að draga fram gamla góða vöfflujárnið, vöfflur í hárið eru að verða aftur vinsælar. Beyoncé skartaði síðu „vöffluðu“ hári í brúðkaupi Serenu Williams í nóvember og hún er ekki hætt að vinna með hárgreiðsluna. 

Á dögunum afhenti söngkonan ruðningskappanum Colin Kaepernick verðlaun í svörtum og silfruðum stuttum kjól frá LaQuan Smith. Hárið var glæsilegt en það má greina smáar bylgjur í hárinu rétt eins og myndast með notkun vöfflujárns. Beyoncé er greinilega búin að skipta um hárstíl í bili en hún hefur bæði skartað sléttu hári sem og miklum liðum. 

Í nýjum hárgreiðsluþætti á Smartlandi krullaði hárgreiðslumeistarinn Bald­ur Rafn Gylfa­son hárið á Sunnevu Eir Einarsdóttur. Baldur fór jafnframt yfir það hvernig vöfflur væru að koma heitar inn og þá kannski mitt á milli meiri liða. 

Eru vöfflurnar komnar aftur?
Eru vöfflurnar komnar aftur? Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál