Þetta er eitt vinsælasta bætiefnið

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. mbl.is/Árni Sæberg

„Í kringum jólin er alltaf eitthvað um hjartavandamál og því er ekki úr vegi að kíkja á þessa grein, sem byggð er á útdrætti úr grein af vef dr. Mercola, en greinin er byggð á samtali hans við bandaríska lækninn Robert Barry, sem hefur stundað miklar rannsóknir á CoQ10, sem er talið mjög gott fyrir hjartað,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli: 

Greinarnar á vefnum hans dr. Mercola eru alltaf með nýjustu upplýsingum um það sem er að gerast í heilsuheiminum og hvernig við getum nýtt okkur náttúrulegar leiðir, eins og fæðu og bætiefni til að viðhalda sem bestri heilsu. Góð lífsgæði á meðan við lifum eru ekki endilega ávísun á langlífi, en þau gera svo sannarlega árin sem við eigum ánægjulegri.

CoQ10 MEÐAL VINSÆLUSTU BÆTIEFNA

Tímaritið NEW HOPE birti nýlega upplýsingar um að Q10 (CoQ10/ubuiquinol) væri meðal vinsælustu bætiefna, sem ætluð eru til að styrkja hvatbera (orkuframleiðsluhluta) frumna okkar. Fjöldi þeirra Bandaríkjamanna sem taka inn Q-10 fór úr 2 milljónum árið 2000 og upp í 24 milljónir árið 2016.

Talið er að þessi aukning eigi sér tvær skýringar. Önnur er sú að sífellt fleiri hjartasérfræðingar hvetja sjúklinga sína til að taka inn Q-10, en hin er sú að fólk er að verða meðvitaðra um mikilvægi þess að viðhalda heilbrigðum hvatberum í frumunum. Eins og með ýmislegt annað dregur með aldrinum úr framleiðslu á ubiqionoli í líkömum okkar og því er mikilvægt að bæta sér það upp með inntöku á CoQ10.

MARGT GERIR Q10 MIKILVÆGT FYRIR HEILSUNA

Ubiquinol – samþjappaða, elektrónríka formið af CoQ10 sem framleitt er náttúrulega af líkamanum – gegnir mikilvægu hlutverki í flutningskeðju hvatberanna, þar sem það greiðir fyrir umbreytingu á hvarfefnum og súrefni, yfir í líffræðilega orku (adenosine triphosphate eða ATP), sem viðheldur lífi, viðgerðum og endurnýjun í frumum okkar.

CoQ10 er fituuppleysanlegt andoxunarefni, sem þýðir að það virkar í fituhluta líkamans, svo sem í frumuhimnunum, þar sem það dregur í sig alls konar aukaefni úr meltingunni, sem þekkt eru sem gagnverkandi súrefnistegundir. Með því að taka inn CoQ10 ertu að vernda frumuhimnuna fyrir oxandi eyðileggingu, en það hefur sýnt sig að virkar vel gegn ýmsum heilsufarsvandamálum og krónískum sjúkdómum.

Í raun kemur það ekki á óvart, því ýmis heilsufarsvandamál, þar með taldir hjartasjúkdómar og mígreni – sem Q10 hefur virkað vel á – virðast tengjast truflun á starfsemi hvatberanna (orkuframleiðsluhluta frumna) í frumunum. Hver einasta fruma í líkamanum notar Q10, einkum þó hjartafrumurnar. Frumurnar í hjartavöðvanum eru með um 200 sinnum meira af hvatberum og þurfa því 200 sinnum meira af Q10 en vöðvar tengdir beinagrind líkamans.

CoQ10 ER MIKILVÆGT FYRIR HEILSU HJARTANS

Rannsóknir sýna að CoQ10 er mikilvægt fyrir þá sem eru með hjarta- og æðasjúkdóma, þar með talið þá sem fá hjartabilun og háþrýsting (háan blóðþrýsting). Rannsóknir gefa líka til kynna að CoQ10 stuðli að bata eftir stórar hjartaaðgerðir.

Hvað varðar hjartaheilsuna er almennur ávinningur sá að ubiquinol virkar líka sem andoxunarefni í blóðinu, þar sem það kemur í veg fyrir oxun á LDL-kólesterólinu (almennt vísað til sem slæma kólersterólsins), og dregur á þann hátt úr líkum á æðahrörnun vegna fituútfellinga. Rannsóknir sem gerðar voru árið 2015 leiddu í ljós að einstaklingar, sem tóku blöndu af CoQ10 og selenium daglega í fjögur ár, fengu færri hjartaáföll, þurftu að dvelja færri daga á spítala og dánartíðni þeirra var lægri en hjá hinum sem ekki tóku neitt.

Báðir foreldrar mínir fengu hjartaáfall, svo ég telst vera í áhættuhópi og hef því tekið nokkuð reglulega inn CoQ10 frá NOW. Ég hef reyndar líka verið að taka inn Selenium frá NOW, vegna þess að það er talið gott gegn vanvirkni í skjaldkirtli. Hins vegar vissi ég ekki að þessi tvö bætiefni ynnu svona vel saman fyrr en ég las þessa grein hjá dr. Mercola.

CoQ10 ER SAMSTARFSAÐILINN

Co-ið í CoQ10 stendur fyrir enska orðið “coenzyme” eða samstarfsensím og það undirstrikar á vissan hátt mikilvægi CoQ10, því það vinnur með öðrum ensímum, til dæmis að því að melta fæðu.

CoQ10 býr líka yfir þeim eiginleika að auka upptöku líkamans á mikilvægum næringarefnum. Það stuðlar til dæmis að því að líkaminn nýti sem best bæði C- og E-vítamín.

Ubiquinol/CoQ10 slær líka á bólgur. Það hefur sýnt sig að hafa jákvæð áhrif á tvö bólgumerkigen, NT-proBNP og GGT (gamma-glutamyl transferase), en hið síðarnefnda er merkigen fyrir hjartabilun. Magn þessara merkigena minnkar og genum sem tengd eru þeim fækkar líka þegar CoQ10 er tekið inn sem bætiefni. Inntaka á CoQ10 getur því ekki bara dregið úr líkum á hjartavandamálum, heldur einnig úr ýmsum öðrum heilsufarsvandamálum sem tengjast krónískum bólgum.

Heimildir: Grein á vefsíðu dr. Mercola

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál