Ofurfyrirsætan Adriana Lima veit hvað hún þarf að gera til þess að komast í gott form enda búin að vera lengi í bransanum. Hin 36 ára gamla fyrirsæta leit glæsilega út á tískusýningu Victoria's Secret á dögunum og hefur regnboga-rassaæfingin örugglega átt sinn þátt í því.
Þjálfari Lima birti myndband af henni gera æfinguna í New York í september en æfingin er einföld, engin tæki þarf til þess að gera hana. Ættu allir sem geta verið á fjórum fótum að geta gert æfinguna heima í stofu.
Stjörnuþjálfarinn Katie Dunlop segir að regnbogaæfingin sé æðisleg til þess að vinna að rassinum frá öllum hliðum án þess að það taki of mikið á lærvöðvana. Æfingin reynir ekki bara á alla rassvöðvana heldur líka á miðjuna.