Flottari brúnka með Astaxanthin

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. mbl.is/Árni Sæberg

„Ef þú ert á leið í sólarfrí á næstunni langar mig að gefa þér gott ráð. Hvort sem þú ætlar að láta geisla sólarinnar verma þig í fáa eða marga daga, er gott að undirbúa húðina sem best. Því er frábært að byrja að taka inn Astaxanthin frá NOW svona þrem til fjórum vikum fyrir brottför og taka það svo inn meðan verið er í sólinni.

Í fyrsta sinn sem ég gerði þetta fyrir mörgum árum síðan, var ég bara í viku í sólarfríi. Var meira að segja bara úti í geislum sólarinnar svona 2 tíma á morgnana og 2 tíma síðdegis. Það sem kom mér mest á óvart var hversu brún ég varð og hversu jöfn brúnkan varð yfir allan líkamann,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli: 



FALLEG HÚÐ, FRÁBÆR SÓLARVÖRN

Rannsóknir sýna skýrt og greinilega að Astaxanthin verndar stærsta líffæri líkamans, sem er húðin. Það bætir rakastig hennar, mýkt og teygjanleika og dregur úr fínum hrukkum, blettum og freknum. Ef við sólbrennum myndast bólgur í húðinni, en ef við tökum inn Astaxanthin fer það inn í húðfrumurnar og dregur úr þeim skaða sem útfjólubláu geislarnir valda húðinni.

Astaxanthin verndar húðina sérstaklega gegn frumudauða sem orsakast af útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar. Ólíkt sólkremum sem borin eru á húðina, blokkar Astaxanthin ekki UV-geislana, þannig að það kemur ekki í veg fyrir að UVB-geislarnir breytist í D-vítamín í húðinni. Það ver húðina einfaldlega gegn skemmdum. 

Gott er að taka Astaxanthin inn með mat, sem í er einhver fita (t.d. ólífuolía eða kókosolía) því það er fituuppleysanlegt bætiefni.

EN HVAÐ ER ASTAXANTHIN?

Astaxanthin er náttúrulegt karótenóíð sem finnst í þara, rækju, humar, kröbbum og laxi. Karótínóíðin eru litarefni sem myndast í náttúrunni og stuðla að góðri heilsu. Í dýraríkinu finnst mest af karótínóíði í vöðvum laxa og vísindamenn geta sér til um að það veiti þessum stórkostlegu fiskum þann kraft sem þarf til að synda upp ár og stórfljót, á móti straumnum.

Astaxanthin er öflugt andoxunarefni með víðtæk heilsufarsleg áhrif og ólíkt öðrum andoxunarefnum eins og beta-karótínI, zeaxanthini, E-, C- og D-vítamínum og seleníum, verður Astaxanthin aldrei að oxandi efni í líkamanum.

Bæði dr. Oz og dr. Mercola segja að þetta sé það bætiefni sem ætti að vera í fyrsta sæti hjá okkur.

UNNIÐ ÚR ÖRÞÖRUNGUM

Astaxanthin frá NOW er unnið úr haematococcus-örþörungum, sem framleiða astaxanthin til að vernda viðkvæma þörungana fyrir sterkum útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar og öðru álagi úr umhverfinu. Það er skylt beta-karótíni, lúteini og canthaxanthin, þótt einstök sameindauppbygging Astaxanthins geri það bæði öflugra og einstakara en önnur karótínóíð.

VIRKAR Á MÖRG KERFI LÍKAMANS

Auk þess að vera gott fyrir húðina er Astaxanthin öflugt og breiðvirkt andoxunarefni sem virkar vel á mörg kerfi líkamans, veitir vörn gegn geislum og stuðlar að heilbrigði augna, heila og hjarta. Að auki hefur það reynst vel gegn hvers konar krabbameinum, meltingarvandamálum, sykursýki, ýmsum meltingarsjúkdómum, lifrarsjúkdómum, ófrjósemi karla og nýrnabilun.

Astaxanthin dregur úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er, allt frá liðvandamálum eins og liðagigt og hvers konar úlnliðsvandamálum eða tennisolnboga. Að auki hefur það stuðlað að auknum árangri hjá íþróttamönnum.

550 SINNUM ÖFLUGRA EN E-VÍTAMÍN

Astaxanthin er 550 sinnum öflugra andoxunarefni en E-vítamín og 6.000 sinnum áhrifaríkara en C-vítamín. Það tekur Astaxanthin 12-19 klukkustundir að hámarkast í blóði þínu og eftir það brotnar það niður á 3-6 klukkustundum. Þess vegna þarf að taka það inn daglega. Ef þú ætlar að nota það til að verja þig fyrir sólinni er gott að taka það í nokkrar vikur áður en farið er í sólarfrí til að leyfa því að byggjast upp í kerfinu.

SJÖ AÐRIR EIGINLEIKAR ASTAXANTHINS

Nokkur önnur lykilatriði greina Astaxanthin frá öðrum karótínóíðum og því er það nú til dags bara hluti af daglegum bætiefnaskammti mínum. Þessi lykilatriði eru:

1-VINNUR Á FRJÁLSUM STAKEINDUM

Líkt og önnur andoxunarefni gefur Astaxanthin frá sér elektrónur sem gera frjálsar stakeindir hlutlausar, en frjálsar stakeindir eru oxandi efni sem hafa eyðileggjandi áhrif á vefi og líffæri líkamans. Það ferli eyðir upp flestum öðrum andoxunarefnum, en Astaxanthin býr yfir miklum birgðum, sem þýðir að það er virkara lengur – samanborið við önnur andoxunarefni.

Astaxanthinið helst líka óskaddað, sem þýðir að það eru engin efnaviðbrögð sem brjóta það niður, en slíkt gerist hjá flestum öðrum andoxunarefnum.

Astaxanthin ræður við fleiri frjálsar stakeindir í einu, en önnur bætiefni eins og t.d. C- og E-vítamín og ýmis önnur ráða aðeins við eina frjálsa stakeind í einu. Astaxanthin getur ráðist á allt að 19 frjálsar stakeindir í einu, með því að mynda rafeindaský í kringum sameindirnar (mólekúlin).

2-HÆGIR Á ÖLDRUNARFERLINU

Einn af einstökum eiginleikum Astaxanthins er að geta varið bæði vatns- og fituuppleysanlega hluta frumunnar. Karótínóíðin skiptast yfirleitt í vatnsuppleysanlega eða fituuppleysanlega hópa, en Astaxanthin tilheyrir hópi sem er mitt á milli og getur haft áhrif á bæði vatn og fitu.

Þetta þýðir að Astaxanthin-sameindirnar geta haft áhrif á og þanið út himnu allra frumna og fljóta því ekki um í blóði okkar, heldur samlaga sig frumuhimnunni.

Þetta á líka við um hvatberana (mítókondruna eða orkudreifingarhlutann) í frumum hjartans, sem er ein ástæða þess að Astaxanthin er svo gott fyrir hjartað.

Þar sem ástand hvatberanna (mítókondrunnar) skiptir miklu máli þegar við eldumst, er stuðningur við hvatberana í frumukjarnanum (mítókondruna) eitt af því besta sem hægt er að gera til að hægja á öldrunarferlinu.

3-VERNDAR TAUGAFRUMURNAR

Astaxanthin getur líka farið í gegnum heilablóðþröskuldinn, sem veitir því öfluga eiginleika til þess að vernda taugarnar. Á þennan hátt verndar Astaxanthin taugafrumurnar og hægir á áhrifum aldurstengdrar heilabilunar og skynhreyfigetu.

Að auki hafa rannsóknir á dýrum sýnt að Astaxanthin getur dregið verulega úr þeim skaða sem fylgir heilablóðfalli.

4-VELDUR EKKI OXUN

Einn af lykileiginleikum Astaxanthin er að það getur ekki valdið oxun. Mörg andoxunarefni valda oxun frekar en andoxun, þegar nægilega mikið er til staðar af þeim. Þess vegna viltu ekki taka of mörg andoxandi bætiefni í einu. Þar sem astaxanthin veldur ekki oxun, jafnvel þótt mikið sé af því í líkamanum, er það bæði öruggara og öflugra andoxunarefni en mörg önnur.

Astaxanthin er í sérflokki þegar kemur að andoxandi eiginleikum þess, vegna þess að það síast inn í allar frumur líkamans. Því má eiginlega segja að það veiti frumum líkamans heildarknús. Í rannsókn sem unnin var árið 2007 kom í ljós að Astaxanthin var 6.000 sinnum öflugra en C-vítamín, 800 sinnum öflugra en CO-Q10 og 550 sinnum öflugra en grænt te og 75 sinnum öflugra en Alpha lipoic acid.

5-ÖFLUGT GEGN BÓLGUM

Astaxanthin virkar á í það minnsta fimm mismunandi bólguferla, svo það er öflugt þegar kemur að því að slá á bólgur í líkamanum og viðhalda jafnvægi í líkamskerfinu. Auk þess að vinna gegn bólgum dregur það um leið úr sársauka, því það blokkar virkni mismunandi efna í líkamanum, sem undir öðrum kringumstæðum fengju þig til að stynja af sársauka. Einnig dregur Astaxanthin úr bólgumyndandi efnum sem ýta undir marga króníska sjúkdóma.

6-ASTAXANTHIN ER ÖFLUGT GEGN SÍÞREYTU

Þeir sem þjást af síþreytu ættu að taka inn Astaxanthin. Það kemur góðu jafnvægi á orku likamans og veitir aukið úthald. Það virkar líka vel fyrir fólk sem er komið með útbrunaeinkenni vegna vinnu eða álags. Þar sem Astaxanthin stuðlar að skjótu jafnvægi í líkamanum eftir æfingar, er það mjög gott fyrir íþróttamenn sem vilja ná sem bestum árangri í því sem þeir eru að gera.

Hreint náttúrulegt Astaxanthin eykur úthald, styrk og bætir árangur líkamans almennt. Vísindamenn tengja það við þá orku sem gerir laxinum kleift að synda gegn straumnum, en mikið af Astaxanthin er í vöðvum laxa, enda borða þeir rækju og aðra skelfiska sem eru ríkir af því efni. 

7-ASTAXANTHIN STYRKIR AUGUN

Astaxanthin býr yfir þeim eiginleikum að komast í gegnum ýmsar hindranir í líkamanum og ná meðal annars til sjónhimnunnar. Ýmsar klínískar rannsóknir sýna að Astaxanthin bætir augnheilsu sykursjúkra, dregur úr þreytu og álagi á augum og stuðlar að skýrari sjón. 

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

www.gudrunbergmann.is 

Heimildir: Grein eftir Suzy Cohen, R.Ph. á Huffington Post

Grein á vef dr. Mercola

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál