Skyggnst inn í íslensku kvensálina
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Dagatalsbókin Konur eiga orðið allan ársins hring er nú komin út í fimmta sinn hjá bókaútgáfunni Sölku. Bókinni er ætlað að vera notadrjúg en um leið hvetjandi og í henni er að finna persónuleg innlegg frá konum á ólíkum aldri af öllum sviðum samfélagsins. Kristín Birgisdóttir, Kría, er ritstjóri bókarinnar en um hönnun og myndskreytingar sér Myrra Leifsdóttir.
Persónuleg heilræði
„Við fengum þá hugmynd fyrir fimm árum að gefa út fallega og persónulega dagatalsbók. Þær eru auðvitað margar til og sumar með heilræðum en þau eru þá oftast eftir fólk sem við þekkjum ekkert eða fólk sem er löngu komið undir græna torfu.
Því sendi ég út keðjubréf með tölvupósti á allar konur sem ég hafði á mínum snærum og bað þær að áframsenda á fleiri konur. Ég bað þær að senda mér stuttar setningar og það eina sem þær þurftu að hafa í huga var að þetta væri frá eigin brjósti.
Viðbrögðin hafa verið mjög góð og nú er þetta orðin hefð. Konur vita af bókinni og ég fæ póst allan ársins hring sem er mjög gaman. Þegar við Myrra förum af stað vel ég síðan setningar og þá þarf kannski eitthvað að laga eða hnykkja á þeirri grunnhugsun sem liggur í orðunum. Þá upphefst smávinna með konunum sem er mjög skemmtilegt. Síðan þegar allar setningarnar eru komnar sendi ég þær til Myrru og hún setur andlit á þetta barn okkar, en hún hefur í þessi fimm ár séð um hönnun kápunnar og teiknar setningarnar með sinni túlkun og notar ljósmyndir líka,“ segir Kría.
Kvenlegt sjónarhorn
Í ár búa um 55 konur til bókina og segir Kristín geta verið erfitt að velja úr. Það sé spennandi að hægt skuli vera að hlera stemningu hvers árs í gegnum bækurnar. Í bókinni megi skyggnast inn í hina íslensku kvensál, ef svo megi segja.
„Konurnar verða líka æ kaldari við að koma með eitthvað alveg einlægt. Sumar t.d. pirrast út í náttúruna eða dásama hana, aðrar eru hástemmdar eða drepfyndnar og svo eru inn á milli gullfalleg ljóð. Nokkrar konur hafa sent mér setningar frá upphafi en að sjálfsögðu bætast alltaf við nýjar í hópinn og hann breytist ár frá ári. Yfirleitt reyni ég að velja hugleiðingar sem skapa vissa heildarmynd af því sem ég fæ sent,“ segir Kría. Konurnar eru á öllum aldri og eitt sinn átti 100 ára gömul kona orð í bókinni. Sú yngsta í ár er níu ára.
„Það skapast viss samstaða með þessari bók og skemmtilegur grunnur, sérstaklega hjá okkur hjá Sölku þar sem við erum kvennaforlag. Auðvitað gefum við líka út bækur eftir karlmenn en þetta kvenlega sjónarhorn er alltaf í fyrirrúmi. Ég fæ líka á tilfinninguna í gegnum þessa vinnu hvað konur vilja lesa og hvernig þær hugsa,“ segir Kría.
Eins og að púsla
„Þetta er æðislegt verkefni og yfirleitt legg ég mikinn tíma í að lesa setningarnar og láta hugann reika í kringum þær. Síðan einhvern veginn dettur hver hugmyndin inn á fætur annarri og þetta smellur saman. Þetta er svolítið eins og að púsla.
Upp úr þessu hefur líka sprottið margs konar samstarf og ég hef kynnst konum sem ég hef unnið með og veit að þetta á við um fleiri. Enda veit í raun engin kona af annarri nema vinkonur sendi inn saman. Allur hópurinn hittist því fyrst í útgáfuboðinu, sem er mjög gaman. Síðast hitti ég þar t.d. konu sem hafði þekkt ömmu mína lengi og verið með henni í Keflavíkurgöngunni,“ segir Myrra.
TILVILJANAKENND FERÐ
Siglufjörður tilvalinn
Tilviljun ein réð því að Myrra hélt til Siglufjarðar síðastliðið sumar og ákvað að vinna sinn hluta bókarinnar þar. Hún hafði aldrei áður komið til Siglufjarðar en segist nú sjá fram á að gera bókina þar hér eftir. Svo góður var vinnufriðurinn og í bókinni er að finna ljósmyndir sem hún tók á Siglufirði og umhverfinu í kring. Teikningarnar voru teiknaðar á litlum kaffihúsum í bænum.
Myrra segir bækurnar gefa ágætis innsýn í það hvað íslenskar konur séu að hugsa hverju sinni. Í ár einkenni sköpunargleði og andagift bókina sem í er t.d. mikið af ljóðum.
























