Gafst upp á strandlífinu: Flutt á lúxushótel

Mynd 1 af 3
Lindsay Lohan er flutt á Chateau Marmont hótelið á Sunset Strip í Hollywood. mbl.is/Samsett mynd

Lindsay Lohan er flutt úr íbúð sinni á Venice-ströndinni í Kaliforníu á lúxushótelið Chateau Marmont, sem er við Sunset Strip í vesturhluta Hollywood. 

Chateau Marmont-hótelið er eitt frægasta hótelið á þessum slóðum enda geymir það arf gamla Hollywood-glamúrsins. Fyrir nokkrum árum var hótelið endurbætt og fékk Gulla Jónsdóttir, sem er íslenskur arkitekt, það verkefni að endurhanna það.

Það að Lohan haldi til á Chateau Marmont gefur til kynna að hún sé ekki alveg auralaus því það kostar skildinginn að gista þar í nokkrar nætur, hvað þá að flytja þangað.

Þegar Smartland heimsótti Hollywood á síðasta ári lá leið undirritaðrar á hótelið eftir að heimsfrægur íslenskur kvikmyndaframleiðandi hafði mælt með því. Að borða sunnudagsbrönsinn á hótelinu er mikið ævintýri. Kaffið var dýrðlegt og morgunmaturinn rann ljúflega niður. Svo er ekki verra að sjá stórstjörnur með eigin augum en þær halda einmitt til á þessum slóðum.

HÉR má sjá myndir af hótelinu innandyra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlit í lekkert eldhús

Hvítt eldhús með marmaraborðplötu.
Í gær, 22:02 Hvíti liturinn og birtan eru í forgrunni í þessari dásamlegu íbúð í Finnlandi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og til að gera það sem glæsilegast er marmaraborðplata á eldhúsinnréttingunni. Meira »

Innlit í Indónesíu: Tjörn undir stiganum

í fyrradag Þegar arkitektastofan Chrystalline fékk verkefnið að hanna smart heimili í Indónesíu var fyrsta hugsunin að leyfa rýmunum að vera opnum og glæsileikanum að flæða óhindrað um heimilið. Meira »

Glæsihúsið til sölu

Scarlett Johansson.
í gær Scarlett Johansson og Ryan Reynolds selja loks heimili sitt í Hollywood-hæðum.  Meira »

Fallegar myndir og leikgleðin í fjörunni

í fyrradag Myndlistarskólinn stendur í sumar að fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Unnið verður jafnt innan dyra sem utan, farið í skoðunarferðir og hugarflugið virkjað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is