Guðslifandi fegin að vera laus við Lindsay Lohan
Fyrrverandi nágrannar leikkonunnar Lindsay Lohan eru mjög hamingjusamir að hún skuli vera flutt úr íbúð sinni í Venice-ströndinni í Kaliforníu. Leikkonan flutti á dögunum úr íbúð sinni á hótelið Chateau Marmont sem er í Hollywood.
Fyrrverandi nágranni Lohan sagði í samtali við RadarOnline að þau væru í skýjunum.
„Fólk er mjög ánægt með að hún skuli vera flutt,“ sagði heimildarmaður í samtali við vefmiðilinn. „Það er frábært að vera laus við hana og öll hennar vandamál.“
Fyrrverandi nágrannar hennar segja að þetta hafi verið eins og í sirkus. Það hafi ekki bara verið ónæði að Lohan heldur paparazzi-ljósmyndurunum sem héngu fyrir utan hús hennar.
„Það voru allir löngu búnir að fá nóg af henni enda var alltaf allt á hvolfi í kringum hana. Í hvert skipti sem við heyrðum í sírenum vorum við viss um að löggan væri að heimsækja hana. Fólk flytur til Venice til að komast í burt frá öllu Hollywood-ruglinu. Það var alger martröð að hafa hana þarna.“
























