Framkvæmt fyrir hundruð milljóna

Mynd 1 af 2
Eggert Jóhannesson
Morgunblaðið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is

Það var kominn tími á gagngerar endurbætur og viðhald hér í Laugardalnum. Þetta er stórt verkefni sem við tökum í nokkrum áföngum og nú þegar er þetta komið vel á veg,“ segir Logi Sigurfinnsson „Vissulega hefur þessu fylgt talsvert umrót en eigi að síður hafa laugargestir sýnt þessu mikinn skilning. Raskið er eðlilega mest yfir daginn þegar iðnaðarmenn eru við störf og því hafa margir gesta okkar mætt frekar á kvöldin. Við reynum að halda starfseminni í eðlilegu horfi þrátt fyrir að okkur sé þröngt sniðinn stakkur meðan á þessu stendur, en þessa vikuna komumst við þó ekki hjá því að loka heitu pottunum alfarið.“

Upphitaðar leiðir og gúmmíefni

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í sundlaugum Reykjavíkurborgar. Verkefnið hófst í fyrra en þungi þess er mestur í ár. Í fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir þetta ár er heimild 2012 til framkvæmda fyrir alls 600 millj. á sundstöðum borgarinnar; nýframkvæmda og endurgerðar. Í fyrra voru 220 millj. kr. eyrnamerktar endurbótum í sundlaugunum.

Sýnu umfangsmestar í ár verða endurbætur í Laugardalnum en áætlanir gera ráð fyrir að heildarkostnaður við þær verði nærri 200 millj. kr. Þar eru undir lagfæringar á bökkum laugarinnar; verða gönguleiðir upphitaðar og að hluta lagðar mjúku gúmmíefni. Þá er eimbað gert upp og steyptur nýr sjópottur. Í haust verður svo byrjað á endurgerð búningsaðstöðu.

Nota gamla afgreiðslusalinn

„Sjópotturinn hefur verið afar vinsæll og við viljum því bæta aðstöðuna þar. Sjóinn í pottinum fáum við úr borholu á Laugarnestanganum sem liggur svo áfram í selalaugina í Húsdýragarðinum. En áður en vatnið er tekið hingað inn fer það í gegnum forhitara og þannig fáum við það hitastig sem þarf að vera útipottunum hér,“ segir Logi. Hann segir að í þessari lotu verði einn útipotturinn í Laugardalnum flísalagður og takist vel til verði hugsanlega haldið áfram á þeirri sömu braut.

„En stóru framkvæmdirnar verða í haust þegar búningsklefarnir sem eru frá árinu 1986 verða endurgerðir. Þetta verður gert á þeim tíma þegar aðsókn hér er allra minnst. Ætlum því að koma upp bráðabirgðaaðstöðu en endurgerð hvers klefa tekur tvo mánuði eða svo. Og meðan á þessu stendur – alveg frá í nóvember og fram á árið 2013 – munum við hugsanlega notast við gamla afgreiðslusalinn sem þykir fallega hannaður enda hafa verið uppi ýmsar hugmyndir um verðugt hlutverk hans,“ segir Logi.

Bæta lífsgæði og skapa sérstöðu

En það hefur verið framkvæmt víðar en í Laugardal. Fyrir nokkrum dögum var tekið í notkun eimbað í Grafarvogslaug auk þess sem þar var bætt við dælum í nuddpott. Í fyrra voru gerðar ýmsar endurbætur í Sundlauginni við Barónsstíg og í ár er unnið með hugmyndir um útisundlaug, og aðstöðu fyrir heilsustarfsemi. Skipaður hefur verið starfshópur til að vinna að undirbúningi og úrvinnslu hugmynda um stækkun og endurbætur – þar sem hugsanlega gæti orðið samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og einkaaðila. Þá er unnið að því að koma upp eimbaði við baðhús Ylstrandarinnar í Laugardal.

Allt er þetta svo hluti af enn stærri pakka en í janúar sl. samþykkti borgarráð að stofna starfshóp sundlauga í Reykjavík. Á hópurinn sem skilar lokatillögum um mitt árið á að móta framtíðarsýn fyrir sundlaugarnar til tuttugu ára með tilliti til ýmissa þátta – en leiðarljós starfsins er að bæta lífsgæði borgarbúa og skapa Reykjavík sérstöðu sem áfangastaður ferðamanna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlit í lekkert eldhús

Hvítt eldhús með marmaraborðplötu.
Í gær, 22:02 Hvíti liturinn og birtan eru í forgrunni í þessari dásamlegu íbúð í Finnlandi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og til að gera það sem glæsilegast er marmaraborðplata á eldhúsinnréttingunni. Meira »

Innlit í Indónesíu: Tjörn undir stiganum

í fyrradag Þegar arkitektastofan Chrystalline fékk verkefnið að hanna smart heimili í Indónesíu var fyrsta hugsunin að leyfa rýmunum að vera opnum og glæsileikanum að flæða óhindrað um heimilið. Meira »

Glæsihúsið til sölu

Scarlett Johansson.
í gær Scarlett Johansson og Ryan Reynolds selja loks heimili sitt í Hollywood-hæðum.  Meira »

Fallegar myndir og leikgleðin í fjörunni

í fyrradag Myndlistarskólinn stendur í sumar að fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Unnið verður jafnt innan dyra sem utan, farið í skoðunarferðir og hugarflugið virkjað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is