Iðnaðarhúsnæði breytt í aðlaðandi íbúð
Það er eitthvað við iðnaðarhúsnæði sem er svo sjarmerandi, það er að segja ef það er meðhöndlað rétt. Poteet-arkitekastofan sannar hér að nóg af hvítu skipalakki getur gert kraftaverk. Stofan fékk það verkefni að búa til eitursvala íbúð í San Antonio í Texas í Bandaríkjunum.
Iðnaðarhúsnæðið var mjög hrátt þegar arkitektarnir tóku verkefnið að sér og hefði verið hægt að fara í margar áttir með það. Arkitektarnir lögðu áherslu á að hafa stílinn einfaldan en beittu allskonar smekklegum trixum sem virka vel. Þeir nota fullt af ódýrum ráðum eins og að stíflakka gólfin með hvítu háglans lakki í staðinn fyrir að klæða gólfið með rándýru gólfefni. Í staðinn nota þeir hugvitið til að stúka af svæðið, setja arna á tveimur stöðum, og útbúa fallega lýsingu í rýminu. Í stað þess að taka loftið niður og minnka þannig lofthæð nota þeir aðrar lausnir til að lýsa íbúðina upp.
Þegar íbúðin var klár voru valin fantaflott húsgögn inn í hana. Í stofunni er til dæmis Arco-lampinn sem fæst hérlendis í Lúmex, ljóst Egg eftir Arne Jacobesen sem fæst í epal og Eames-hægindastóllinn sem fæst í húsgagnaverslun Pennans. Við stóra borðstofuborðið eru Túlípanastólarnir frá Knoll. Þess má geta að samskonar stólar eru á 101 Hóteli í Reykjavík, bara svartir að lit.
























