Troddu þessari hönnun ...
Undirrituð rakst á bloggsíðuna Fuck Your Noguchi Coffee Table á skrölti sínu um veraldarvefinn. Það að einhver skyldi opna bloggsíðu þar sem gert er grín að uppáhaldsborði undirritaðrar vakti forvitni.
Þegar bloggsíðan, sem er augljóslega ný af nálinni, er skoðuð kemur í ljós að það er ekki verið að níðast á hönnun ISAMU NOGUCHI, sem hannaði Noguchi-borðið, heldur eru ýmsir hönnunarhlutir skoðaðir ásamt hlutum sem hafa verið vinsælir síðustu ár. Plakat í ramma með setningunni Keep Calm and Carry on hefur verið ódauðlegt síðustu ár þótt ekki sé vitað hvort allir, og amma þeirra líka, sem hafa plakatið upp á vegg hjá sér fara eftir þessari speki. Það hefur ekki verið hægt að opna breskt húsbúnaðarblað án þess að plakatið komi fyrir eins og einu sinni í hverju blaði.
Á síðunni er mikið af fallegum myndum af heimilum sem skarta hönnun sem marga fagurkera dauðlangar að eignast. Þeir sem hafa ekki ráð á því eru yfirleitt fyrstir til að gera grín að hönnuninni en fjárfesta svo í klassíkinni um leið og hagur vænkast.
Það versta við þessa síðu er að hún minnir fólk á hluti sem það var löngu búið að afskrifa að það myndi nokkurn tímann eignast. Það má þó hafa það í huga að ef konu langar ennþá í stofuborð árið 2012 sem hana langaði í árið 2006 þá hlýtur hönnunin að vera klassísk. Eða hvað?
























