Fullkomnar valentínusargjafir
Vefsíðan perpetualkid er skemmtileg vefsíða fyrir ungt fólk á öllum aldri. Þar er að finna alls konar fyndna og flotta hluti sem lífga upp á umhverfið og hressa mann og kæta. Á vefsíðunni má t.d. finna sniðugar valentínusargjafir eins og stórt kerti í laginu eins og gúmmíbangsi og kassa með ástarplöntu. Svo má ekki gleyma samlokupokunum sem tryggja það að enginn muni framar stela frá þér girnilegri samloku. Pokarnir eru nefnilega skreyttir grænum klessum sem líkjast myglu. Sá sem ekki veit betur er líklegast ófús til að borða „myglaða“ samloku og seilist því ekki í þína. Þú getur líka fundið hluti fyrir gæludýr og þeim tengda á vefsíðunni. Fyrir þá sem eiga ketti væri t.d. mjög sætt að hafa gólfmottu við útidyrahurðina sem á stæði „Hér skreytum við með köttum“. Ýmislegt af þessu tagi leynist á vefsíðunni og er tilvalið að skoða úrvalið ef þig langar í eitthvað öðruvísi í herbergið þitt. Nú er bara að skoða úrvalið og sjá hvort manni líst ekki á eitthvað.
























