Hlýir straumar taka við af minimalismanum

Mynd 1 af 10
Þórunn Högnadóttir. Sigurgeir Sigurðsson

Smekkkonan Þórunn Högnadóttir starfar sem blaðamaður á Húsum og híbýlum. Lesendur blaðsins hafa fengið að kynnast hæfileikum hennar á heimilissviðinu og hefur hún verið dugleg að kenna lesendum sínum að gera upp gamla hluti á einfaldan og ódýran hátt. Auk starfsins á húsbúnaðarblaðinu starfar hún sem stílisti og hjálpar fólki að gera fallegra heima hjá sér og gerir fyrirtæki vistlegri. En út á hvað gengur stílistaþjónustan?

„Hún gengur að mestu leyti út á það að koma með sniðugar hugmyndir og góðar lausnir, sem henta bæði fyrir heimili og fyrirtæki,“ segir Þórunn.

Hverjir eru helstu straumar og stefnur í innanhússstíliseringu? „Hlýja og rómantík er það sem er vinsælt í dag. Það er svo gaman að sjá hvernig stíllinn breytist inn á heimilum fólks á milli ára. Það má kannski segja að þessi  minimalíski stíll sé ekki eins vinsæll í dag og var fyrr nokkrum árum síðan. En auðvitað er smekkur manna misjafn eins og fólkið er margt og að sjálfsögðu á að maður að velja sér það sem manni finnst fallegt. Það skiptir mestu máli að fjölskyldunni líði vel heima hjá sér.“

Þórunn segir að húsgögn í „vintage“ séu vinsæl í dag og nefnir að íslensk heimili séu að verða mun hlýlegri en þau voru fyrir nokkrum árum. 

„Sniðugt er að blanda þeim saman við klassíska hönnun. Svo mæli ég með fallegum litum þegar kemur að málningu. Gráir litir eru mjög vinsælir í dag, sem og allir hlýir litir, grátt er einnig vinsælt í húsgögnum og innréttingum. En svo eru ekki allir að eltast við einhverja tískustrauma og velja sér það sem þeim finnst fallegt og hentar þeirra stíl.“

Hvað er fólk helst að gera rangt þegar kemur að því að búa til falleg heimili? „Það er kannski ekkert eitt sem hægt er að nefna, en oft er það samsetningin, uppröðun og litaval.“

Lumar þú á einföldum og ódýrum trixum sem henta sem flestum sem vilja gera fallegt heima hjá sér? „Skipta reglulega út hjá sér púðum, rúmteppum og breyta um liti á handklæðum. Færa til myndir og málverk, breyta um liti á veggjum, endurraða í hillum og fækka hlutum,“ segir Þórunn. HÉR er hægt að skoða facebook-síðu hennar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlit í lekkert eldhús

Hvítt eldhús með marmaraborðplötu.
Í gær, 22:02 Hvíti liturinn og birtan eru í forgrunni í þessari dásamlegu íbúð í Finnlandi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og til að gera það sem glæsilegast er marmaraborðplata á eldhúsinnréttingunni. Meira »

Innlit í Indónesíu: Tjörn undir stiganum

í fyrradag Þegar arkitektastofan Chrystalline fékk verkefnið að hanna smart heimili í Indónesíu var fyrsta hugsunin að leyfa rýmunum að vera opnum og glæsileikanum að flæða óhindrað um heimilið. Meira »

Glæsihúsið til sölu

Scarlett Johansson.
í gær Scarlett Johansson og Ryan Reynolds selja loks heimili sitt í Hollywood-hæðum.  Meira »

Fallegar myndir og leikgleðin í fjörunni

í fyrradag Myndlistarskólinn stendur í sumar að fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Unnið verður jafnt innan dyra sem utan, farið í skoðunarferðir og hugarflugið virkjað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is