170 milljóna einbýli

Mynd 1 af 2
Hús Jóns Ingvarssonar er metið á 170 milljónir. mbl.is/Eignarmiðlun

Í Skerjafirðinum stendur tæplega 500 fm einbýli við Skildinganes. Húsið er til sölu hjá Eignarmiðlun og kostar það 170 milljónir. Húsið stendur á besta stað á sjávarlóð og státar af einstöku útsýni. Ingimundur Sveinsson teiknaði húsið árið 1977. 

Húsið er í eigu Jóns Ingvasonar lögmanns sem oft er kenndur við Ísbjörninn. Hann byggði húsið á sínum tíma og hefur búið í því allar götur síðan. Þess má geta að hann er föðurbróðir Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, sem býr í sömu götu.

HÉR er hægt að skoða það nánar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlit í lekkert eldhús

Hvítt eldhús með marmaraborðplötu.
Í gær, 22:02 Hvíti liturinn og birtan eru í forgrunni í þessari dásamlegu íbúð í Finnlandi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og til að gera það sem glæsilegast er marmaraborðplata á eldhúsinnréttingunni. Meira »

Innlit í Indónesíu: Tjörn undir stiganum

í fyrradag Þegar arkitektastofan Chrystalline fékk verkefnið að hanna smart heimili í Indónesíu var fyrsta hugsunin að leyfa rýmunum að vera opnum og glæsileikanum að flæða óhindrað um heimilið. Meira »

Glæsihúsið til sölu

Scarlett Johansson.
í gær Scarlett Johansson og Ryan Reynolds selja loks heimili sitt í Hollywood-hæðum.  Meira »

Fallegar myndir og leikgleðin í fjörunni

í fyrradag Myndlistarskólinn stendur í sumar að fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Unnið verður jafnt innan dyra sem utan, farið í skoðunarferðir og hugarflugið virkjað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is