Leonardo DiCaprio kominn á rafmagnsbíl
Jónas Arnarsson jonas@giraffi.net
Ef ætlunin er að verða bestur í einhverju getur verið gott að vera fyrstur til. Það er einmitt það sem Fisker gerði þegar fyrirtækið hóf framleiðslu á fyrsta fernra dyra lúxusrafmagnsbílnum. Fisker var stofnað árið 2007 af Henrik Fisker og nokkrum fjárfestum. Áður hafði Henrik Fisker unnið sem hönnuður hjá m.a. BMW og Aston Martin og sem dæmi um bíla sem hann hefur hannað eru BMW Z8, Aston Martin DB9 og V8 Vantage.
Hollywoodstjörnur kaupa Fisker
Fisker Karma fór í sölu á þessu ári og hafa fyrstu kaupendurnir fengið sína bíla afhenta, þeirra allra fyrstur var stórleikarinn Leonardo DiCaprio. Var hann meðal annars á undan umhverfissinnanum og fyrrum varaforseta Bandaríkjanna Al Gore til þess að fá sitt eintak. Al Gore hafði áður aðstoðað Fisker við að fá stórt lán frá bandaríska ríkinu til að Karma gæti orðið að veruleika, en það hefur eflaust þótt söluvænlegra að DiCaprio fengi fyrsta bílinn. Síðan þá hafa fleiri Hollywoodstjörnur sem vilja líta út fyrir að vera umhverfisvænar fengið sér Fisker Karma enda þrá þær það eflaust að keyra um á lúxusbíl á ný eftir nokkur ár á Prius.
Fisker ætlar sér stóra hluti og hyggst selja bíla um allan heim. Í Finnlandi munu um 15 þúsund bílar vera framleiddir á ári en í aðalverksmiðjunni í Bandaríkjunum verður ársframleiðslan 75 til 100 þúsund bílar. Stefnt er að því að helmingurinn af þeim bílum verði fluttur til annarra landa og er það hæsta hlutfall allra bandarískra bílaframleiðenda. Bandaríska verksmiðjan var áður í eigu bílarisans GM en þónokkurt samstarf hefur verið á milli þeirra og Fisker. Dæmi um það er litla bensínvélin sem er í Karma en hún er framleidd af Chevrolet sem er í eigu GM.
Þokkalegur verðmiði
Chevrolet-bensínvélin er 2,0 lítra fjögurra strokka með túrbínu og skilar 260 hestöflum. Hún er einungis ætluð til þess að hlaða rafgeymana. Þó er hægt að nota hana til þess að keyra þegar allt rafmagnið er búið af geymunum eftir 480 kílómetra. Rafmagnsmótorarnir eru ekki slappir en þeir eru tveir og saman skila þeir 402 hestöflum og 1299 nm af togi. Það er meira tog en ofurbíllinn Bugatti Veyron Grand Sport hefur upp á að bjóða.
Í bili er Karma eini bíllinn frá Fisker en í framtíðinni er m.a. stefnt að því að framleiða blæjubíl og ódýrari bíl og munu þeir einnig vera rafmagnsbílar. Verðmiðinn á Karma er þokkalegur eða rúmar 12 milljónir, og þá er eftir að flytja hann til Íslands.
























