Vefsíðan www.mylsnur.wordpress.com: Samtímamenning skoðuð
Það er skemmtilegt að rekast á blogg þar sem fólk er að velta fyrir sér samfélagsmálum á vel upp settan og forvitnilegan hátt. Tótu Lauf sem heldur utan um vefsíðuna mylsnur.wordpress.com tekst vel up hvað þetta varðar. En bókmenntafræðingurinn og grafíski hönnuðurinn Tóta segist á vefsíðunni sjaldan sitja auðum höndum. Yfirskrift vefsíðunnar segir að þetta snúist um ferðalagið, ekki áfangastaðinn. Er það sannarlega nokkuð sem gott væri að sem flestir tileinkuðu sér. Að lifa í núinu og njóta líðandi stundar.
Á vefsíðunni lítur Tóta meðal annars ýmsar auglýsingar gagnrýnum augum og skoðar hvernig konum er lýst í þeim. Hægt er að setja inn ummæli og þannig geta skapast hressandi umræður. Tóta veltir líka fyrir sér bókakápum og hinu „eðlilega“ foreldrahlutverki. Á vefsíðunni mylsnur er ýmislegt í samtímamenningu okkar sem þykir „sjálfsagt“ skoðað ofan í kjölinn. Skoðanir okkar geta vissulega verið ólíkar en þarft er að láta minna sig reglulega á þá pressu og ramma sem nútímasamfélag setur okkur á köflum. Sérstaklega er varðar útlit, kynhlutverk og holdafar.
























