Marmarahöll í Mexíkó

Arkitektastofan twentyfourseven á heiðurinn af einbýlishúsi í höfuðborg Mexíkó. Húsið, sem er á tveimur hæðum, er svo vandað og fallegt að það er ekki hægt annað en brosa hringinn þegar myndirnar eru skoðaðar.

Á neðri hæðinni, þar sem stofurnar eru, er hægt að opna húsið upp á gátt þannig að garðurinn flæði inn í húsið. Í loftslagi sem ríkir á þessum slóðum er það afar snjallt en myndi kannski ekki gera sama gagn á Íslandi.

Viður, marmari og gler eru í forgrunni í þessu glæsilega húsi. Það eina sem setja má út á er eldhúsið. Það passar einhvern veginn ekki við afganginn af húsinu. En auðvitað er það smekksatriði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlit í lekkert eldhús

Hvítt eldhús með marmaraborðplötu.
Í gær, 22:02 Hvíti liturinn og birtan eru í forgrunni í þessari dásamlegu íbúð í Finnlandi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og til að gera það sem glæsilegast er marmaraborðplata á eldhúsinnréttingunni. Meira »

Innlit í Indónesíu: Tjörn undir stiganum

í fyrradag Þegar arkitektastofan Chrystalline fékk verkefnið að hanna smart heimili í Indónesíu var fyrsta hugsunin að leyfa rýmunum að vera opnum og glæsileikanum að flæða óhindrað um heimilið. Meira »

Glæsihúsið til sölu

Scarlett Johansson.
í gær Scarlett Johansson og Ryan Reynolds selja loks heimili sitt í Hollywood-hæðum.  Meira »

Fallegar myndir og leikgleðin í fjörunni

í fyrradag Myndlistarskólinn stendur í sumar að fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Unnið verður jafnt innan dyra sem utan, farið í skoðunarferðir og hugarflugið virkjað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is