Setur allt sitt traust á sjónina

Mynd 1 af 5
Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Hjónin Elín Edda Árnadóttir og Sverrir Guðjónsson eru samstiga í listinni. Eftir að hafa dvalið í Japan og á fleiri stöðum í heiminum sameinuðu þau krafta sína í samvinnu við Listvinafélag Hallgrímskirkju og úr varð sýningin Credo. Sýningin sameinar myndlist og tónlist á undursamlegan hátt.

„Walking on Sound-kvikmyndavinnan leiddi okkur til Japans þar sem okkur bauðst að dvelja í zenhofi í Kyoto. Þar bauðst kjörið tækifæri fyrir Elínu Eddu að þjálfa svonefnda pensilskrift - calligraphy - undir handleiðslu zenmeistara. Við héldum síðan áfram að velta Credo fyrir okkur á vinnustofum í Róm, Prag og París á meðan við undirbjuggum önnur verkefni. Við viljum gjarnan tengja sýninguna við trúariðkun, sama hvaða trúarbrögð við aðhyllumst.“

Sverrir hefur síðan sett saman tónlist sem tengist trú, bæn og trausti barnsins innra með okkur öllum. Tónlistargjörningur fer fram við opnun en einnig geta gestir hlýtt á tónlist í heyrnartólum á meðan sýningin er skoðuð,“ segir Elín Edda. 

Elín Edda hefur ekki verið með heyrn á vinstra eyra frá fæðingu og nú er hægra eyrað farið að gefa sig. Hún lætur það þó ekki stoppa sig.

„Nú verð ég að setja allt mitt traust á sjónina. Heyrnin á vinstra eyra var nánast engin frá fæðingu, en nú hefur hægra eyrað brugðist að miklu leyti og eftir nákvæma rannsókn fékk ég mjög þróað heyrnartæki með fjarstýringu fyrir nokkrar stillingar. Ég sakna þess mest að geta notið tónlistar á sama hátt og áður.“

Þegar þau eru spurð hvort ferðalögin hafi breytt þeim játa þau því.

„Það er óhætt að segja að Japansdvölin hafi haft mikil áhrif á okkur bæði. Hér er um afar gamalt menningarsamfélag að ræða með mikla fágun sem teygir sig inn á öll svið mannlegs samfélags.“

Hvað stóð upp úr á ferðalögunum? „Hofin í Kyoto; Signubakkar í París; miðaldaborgin Prag; hin stórkostlega Rómaborg í allri sinni fegurð.“

Hefur Credo breytt lífssýn ykkar? „Credo kallar fram bernskuna og bænir foreldranna um vernd Guðs, börnunum til handa.“

Sýningin Credo stendur yfir til 15. febrúar í Hallgrímskirkju.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlit í lekkert eldhús

Hvítt eldhús með marmaraborðplötu.
Í gær, 22:02 Hvíti liturinn og birtan eru í forgrunni í þessari dásamlegu íbúð í Finnlandi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og til að gera það sem glæsilegast er marmaraborðplata á eldhúsinnréttingunni. Meira »

Innlit í Indónesíu: Tjörn undir stiganum

í fyrradag Þegar arkitektastofan Chrystalline fékk verkefnið að hanna smart heimili í Indónesíu var fyrsta hugsunin að leyfa rýmunum að vera opnum og glæsileikanum að flæða óhindrað um heimilið. Meira »

Glæsihúsið til sölu

Scarlett Johansson.
í gær Scarlett Johansson og Ryan Reynolds selja loks heimili sitt í Hollywood-hæðum.  Meira »

Fallegar myndir og leikgleðin í fjörunni

í fyrradag Myndlistarskólinn stendur í sumar að fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Unnið verður jafnt innan dyra sem utan, farið í skoðunarferðir og hugarflugið virkjað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is