Smartland Mörtu Maríu
|
Heimili og hönnun
| mbl
| 14.2.2012
| 22:32
Barbie-brúðhjónin í búðir
Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.isBarbie-aðdáendur um allan heim hafa nú ástæðu til að kætast því von er á nýjum Barbie-dúkkum að fyrirmynd Vilhjálms Bretaprins og eiginkonu hans, Katrínar hertogaynju af Cambridge, eins og þau voru klædd á brúðkaupsdaginn.
Leikfangaframleiðandinn Mattel hefur tilkynnt að von sé á bresku Barbie-brúðhjónunum í apríl en þá halda Vilhjálmur prins og Katrín hertogaynja upp á eins ár brúðkaupsafmælið, að því er fram kemur í Daily Mail.
Barbie-hjónin verða klædd eins og Vilhjálmur og Katrín þegar þau gengu upp að altarinu; hann í rauðum jakka með bláan borða og orður í barminum, hún með kórónu og slör í skósíðum hvítum brúðarkjól í anda hönnuðarins Söruh Burton fyrir Alexanders McQueen.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























