Draumahúsið í anda Carrie Bradshaw

Mynd 1 af 8
Sarah Jessica Parker í heimsókn í Hvíta húsinu. Susan Walsh

Sarah Jessica Parker hefur loksins fundið draumahúsið sitt. Leikkonan og eiginmaður hennar, Matthew Broderick, leituðu lengi að rétta húsnæðinu og fundu loks það sem Parker var að leita að; heimili í anda Carrie Bradshaw úr sjónvarpsþáttunum vinsælu Beðmál í borginni.

Parker og Broderick voru orðin úrkula vonar þegar þau loks rákust á rétta húsið í Bridgehampton á Long Island. Í viðtali við tímaritið ELLE DECORATION segir leikkonan að þau hafi falið vini sínum Eric Hughes að taka húsið í gegn en hann starfaði áður við kvikmyndaframleiðslu og var nýja heimili leikarahjónanna frumraun hans í innanhúshönnun.

„Við vildum að heimilið yrði þægilegt, opið og bjart og mikið um liti,“ segir Parker. „Við treystum Hughes fullkomlega til verksins. Hann notaði tækifærið og lét innrétta sjónvarp í svefnherbergið sem hægt er að fela inni í vegg og líkti þar eftir svefnherbergi Carrie Bradshaw.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlit í lekkert eldhús

Hvítt eldhús með marmaraborðplötu.
Í gær, 22:02 Hvíti liturinn og birtan eru í forgrunni í þessari dásamlegu íbúð í Finnlandi. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og til að gera það sem glæsilegast er marmaraborðplata á eldhúsinnréttingunni. Meira »

Innlit í Indónesíu: Tjörn undir stiganum

í fyrradag Þegar arkitektastofan Chrystalline fékk verkefnið að hanna smart heimili í Indónesíu var fyrsta hugsunin að leyfa rýmunum að vera opnum og glæsileikanum að flæða óhindrað um heimilið. Meira »

Glæsihúsið til sölu

Scarlett Johansson.
í gær Scarlett Johansson og Ryan Reynolds selja loks heimili sitt í Hollywood-hæðum.  Meira »

Fallegar myndir og leikgleðin í fjörunni

í fyrradag Myndlistarskólinn stendur í sumar að fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Unnið verður jafnt innan dyra sem utan, farið í skoðunarferðir og hugarflugið virkjað. Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is