Bílahátíð hjá BL um helgina: Kynna tímamótajeppann
Bl, sem fagnar nýju nafni með veglegri bílahátíð nk. helgi, kynnir við þetta tilefni nýjan sportjeppa, Subaru XV. Jeppinn er bíll sem markar tímamót hjá Subaru fyrir sparneytni og nýstárlegt útlit. Þessi nýi bíll er gefinn upp með eyðslu upp á aðeins 6,6 lítra á hverja 100 km í blönduðum akstri og ekki nema 5,5 lítra á hverja 100 km í langkeyrslu. CO2-útblásturinn er með því lægsta sem gerist í þessum stærðarflokki eða 153 g á hvern km, sem gerir það að verkum að bíllinn lendir í lágum tollflokki eða aðeins 25%.
Subaru XV er með sítengt fjórhjóladrif og þar við tengist ný og endurbætt 2,0 lítra 150 hestafla þverliggjandi BOXER-bensínvél með stopp-start-búnaði og sex þrepa sjálfskiptingu. Veghæðin á þessum nýja bíl er sú mesta í flokknum, 22 cm.
Í nýlegum öryggisprófunum á vegum EuroNCAP fékk XV fullt hús stiga eða fimm stjörnur. Nýjung í öryggisbúnaði Subaru XV eru öryggisloftpúðar fyrir högg á hné. Bíllinn hefur auk alls þessa margvíslegan annan hagnýtan staðalbúnað.
Á sýningunni um helgina, sem opin verður laugardag frá 12-16 og sunnudag frá 13-16, getur að líta nýja Subaru XV í ýmsum litum og boðið er upp á reynsluakstur.
























