Fantaflott lúxusvilla með sundlaug
Við fjöllin í Desert Hot Spring í Kaliforníu stendur L-laga glæsivilla sem teiknuð var af arkitektinum Marmol Radziner. Húsið er hreint og klárt augnayndi og nostrað hefur verið við hvert smáatriði. Nútímabyggingarstíll er ríkjandi í hönnun hússins þar sem stórir gluggar spila stórt hlutverk og flatt þak setur svip sinn á húsið að utan.
Þegar inn er komið tekur hlýlegur einfaldleiki við. Eldhúsið er áhugavert. Þar er viðarinnrétting með góðu skápaplássi og ríflegu vinnuplássi í forgrunni. Það kemur vel út að hafa viðarklæðningu á veggnum í sama lit og innréttinguna. Auk þess koma opnu hillurnar vel út enda yfirnáttúrlega vel raða í þær. Gólfið eru flotuð og til að búa til hlýlegt andrúmsloft er motta í stofunni sem fer vel við sófana sem eru ákaflega mjúkir og lekkerir.
Sundlaugin fyrir utan húsið toppar allt og gerir húsið ennþá meira spennandi.
























