Gatan mín Grenigrund í Kópavogi: Vöknuðu við fyrsta hanagal
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Lengi man til lítilla stunda og margt næsta sérkennilegt hefur áhrif og mótar líf fólks til lengri og skemmri tíma. Þannig má segja að Vestmannaeyjagosið árið 1973 hafi orðið vendipunktur í lífi Rannveigar Ásgeirsdóttur sem býr við Grenigrund í Kópavogi. Hún er bæjarfulltrúi í sínum heimabæ fyrir hönd Y-lista Kópavogsbúa sem á aðild að nýjum meirihluta í bæjarstjórn sem tók við stjórnartraumum sl. þriðjudag. Í krafti þess samstarfs gegnir Rannveig embætti formanns bæjarráðs.
Foreldrar Rannveigar, Ásgeir Ólafsson og Dagmar Gunnarsdóttir, byggðu húsið á Birkigrund 67, steinhús á tveimur hæðum með hálfniðurgröfnum kjallara, og fluttu þangað í október 1974. Ólst Rannveig upp við Birkigrund frá sjö ára aldri og bjó fram að tvítugu. Að föður sínum látnum flutti hún annað en komin með fjölskyldu ákvað hún að halda aftur á æskuslóðirnar og býr nú við Grenigrund, sem áður tilheyrði Nýbýlavegi.
Hann kolféll fyrir sveitinni
Og aftur komum við að Eyjagosinu. „Faðir minn, Ásgeir Ólafsson, var forstjóri Brunabótafélags Íslands og þegar gaus á Heimaey komu viðlagasjóðshúsin svokölluðu til landsins fyrir tilstilli Brunabótar, keypt af Storebrand í Noregi. Pabbi var í þeim hópi sem valdi landsvæði fyrir húsin í Kópavogi, það er alveg niðri í Fossvogsdalnum. Þegar pabbi hafði farið um dalinn og fylgst með uppsetningu húsanna varð ekki aftur snúið. Hann kolféll fyrir sveitinni,“ segir Rannveig.
„Við höfðum búið við Háaleitisbrautina í Reykjavík en þegar hér var komið sögu – á því herrans ári 1974 – var skemmtistaðurinn Hollywood við Ármúla mjög vinsæll og ónæði og umferð framhjá húsinu okkar á Háaleitisbraut orðin talsverð, þótt ég fyndi aldrei fyrir því. En við fluttum semsagt í sveitina og vöknuðum við kúabaulið og rýtið í svínunum hjá Geir á Lundi. Fyrsta morguninn í húsinu sváfu allir yfir sig, því þögnin var alger. Ekkert sem vakti okkur fyrr en haninn fór að gala úti á Lundi.“
Samstilltir um gott hverfi
Þau hverfi Kópavogs sem kennd eru við grundir og tún eru vel í sveit sett og fylgja mikil hlunnindi. „Útivistarparadísin Fossvogsdalur er dýrmæt. Við erum líka heppin í Kópavogi að eiga frábæra skóla og í mínu hverfi eru tveir; leikskólinn Furugrund og Snælandsskóli. Ekki má gleyma íþróttaaðstöðu HK í Fagralundi sem er til fyrirmyndar fyrir börn á öllum aldri. Hér eru allir svo samstilltir um að hafa hverfið gott og eftir eril í vinnu er gott að koma heim í rólegheitin,“ segir Rannveig sem frá fyrri árum minnist margra skemmtilegra atvika og sagna sem í frásögur eru færandi.
„Ég var skíthrædd við Svein gamla á Snælandi og ef ég fór upp götuna hjá honum til að heimsækja bekkjarfélaga hljóp ég eins og fætur toguðu. Gömlu hjónin voru þá bara með hænur í litla garðinum við húsið, en krakkarnir voru duglegir að spinna upp sögur í kringum þau,“ segir Rannveig.
„Það var mikil samheldni í hverfinu þegar það var að byggjast upp eins og gerist óhjákvæmilega hjá frumbýlingum. Krakkar á ólíkum aldri léku sér saman og menn hjálpuðust að við að gróðursetja og skipuleggja nærsvæði sitt. Ég hef oft hitt gamla nágranna mína núna í gegnum tíðina og það er dýrmætt að geta rifjað upp gamla tíma, það eru forréttindi að fá að halda tengslum við sínar rætur.“
Heill heimur út af fyrir sig
Grenigrund er söguleg og hlýleg gata sem heldur vel utan um fólkið sitt hvar hún stendur í skjóli trjáa. Upphaf Snælandshverfisins og í raun heill heimur út af fyrir sig.
„Í þessari götu finna menn mjög fyrir auknum umferðarþunga frá Nýbýlavegi, enda umferð um hann stóraukist síðustu ár. Á kvöldin færist þó meiri ró yfir. Lundarhverfið hér rétt vestan við mig er í uppbyggingu ennþá og við eigum eftir að sjá hvernig það þróast með tilliti til aldurs íbúa, það er hvort mikið verður um börn í hverfinu sem þurfa þá að komast í skóla annaðhvort gangandi í gegnum rótgróinn hluta svæðisins eða sem farþegar í bíl. En að sjálfsögðu eykst umferð þar sem fólki fjölgar, það liggur í hlutarins eðli.“
Rannveig Ásgeirsdóttir er læknaritari og starfaði sem slík til fjölda ára og stofnaði m.a. fyrirtæki utan um slíka þjónustu sem hún stjórnaði í þrjú ár. Núna starfar hún á læknastofu Grundar við Hringbraut og Markar á Suðurlandsbraut.
„Starf bæjarfulltrúans er hins vegar ærinn starfi og sennilega er hægt að kalla mig félagsmálafrík. Sl. átján ár hef ég verið óþreytandi í stjórnum og almennu félagsstarfi tengdu skólum, bæði leik- og grunnskólum. Maður á að láta umhverfi barnanna sinna sig varða, þau eyða meiri tíma með öðru fólki en foreldrunum. Við eigum að starfa með því góða fólki sem sinnir börnum okkar,“ segir Rannveig og heldur áfram:
H&M í Kópavog?
„Ég hef setið í stjórn Heimilis og skóla, var fulltrúi foreldra í skólanefnd Kópavogs og svona gæti ég haldið áfram,“ segir Rannveig og bætir við að mörg áhugaverð verkefni bíði á vettvangi bæjarmálanna sem hún hlakki til að sinna. Skóla- og forvarnarmál, þátttaka íbúa og málefni aldraðra séu efst á baugi núna og þá hafi Reykvíkingar reifað gamla hugmynd um sundlaug í Fossvogsdal sem er nú í þankanum. Í hverfinu þurfi að ljúka framkvæmdum á Lundarsvæðinu og sömuleiðis sé mikilvægt að áhugaverð starfsemi sem hæfir staðnum fái inni í húsunum við Nýbýlaveg þar sem umboð Toyota hefur verið til áratuga: „Eins og margir landsmenn er ég áhugasöm um að fá H&M til landsins. Þetta væri kjörin staðsetning – Kópavogur er miðpunkturinn.“
























