Afslöppuð fyrir matarboð

Halla Bára Gestsdóttir leggur fallega á borð.
Halla Bára Gestsdóttir leggur fallega á borð. mbl.is/Árni Sæberg

Halla Bára Gestsdóttir, ritstjóri Home & Delicious, er mjög róleg fyrir matarboð og finnst best að vera með ýmiss konar samtíning á borðum. Hún er hrifin af því að nota bláa og gráa litatóna sem grunnliti á matarborðið og segir allt annað passa vel við þá samsetningu.

Halla Bára Gestsdóttir er ritstjóri veftímaritsins og bloggsíðu Home & Delicious sem fjallar um hönnun og heimili og hefur lengi verið viðloðandi slíka útgáfu. Hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sverrisson, stóðu að fylgiblaði Morgunblaðsins; Lifun, um langt skeið, gáfu út Veggfóður, tímaritið, og þá hafa komið út bækur eftir þau hjónin. Sunnudagsblaði Morgunblaðsins þótti því forvitnilegt að vita hvernig þau sjálf græjuðu borðstofuborðið fyrir eigin matarboð.

„Ég er mjög afslöppuð þegar kemur að slíkum boðum og hreint út sagt samanstendur slík skreyting af samtíningi. Grái dúkurinn er til að mynda gamalt rúmteppi úr IKEA sem ég litaði og finnst hann mjög góður í að leggja ofan á annan ljósari. Þá er stellið mitt líka hálfgerð blanda því ég varð fyrir því óhappi á leið heim frá Ítalíu, þar sem ég var í námi, að kassinn með leirtauinu mínu brotnaði.“

Halla Bára segir gráan og bláan grunn leyfa öllum öðrum litum að njóta sín. Bleik blóm og skærir litir njóta sín til dæmis vel. „Ég er alls ekki mínímalísk og er til dæmis með dót út um allt. Heimili verður að vera þannig að fólk geti haft sína hentisemi. En svo á ég til alls kyns sérvisku og til dæmis er mikið grín gert að mér fyrir að vera alltaf með litlar glerflöskur í öllu sem ég kem nálægt. Ég sting blómum í þær og þær eru mitt uppáhaldsskraut.

Halla Bára Gestsdóttir leggur á borð.
Halla Bára Gestsdóttir leggur á borð. mbl.is/Árni Sæberg
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál