„Penthouse“ í Hátúni - MYNDIR

Mynd 1 af 6
Úr íbúðinni er fallegt útsýni.

Við Hátún í Reykjavík er að finna afbragðsíbúð á 9. hæð sem nýlega er búið að endurnýja frá grunni á afar smekklegan hátt. Í íbúðinni eru ljósar viðarinnréttingar á móti hvítum háglansandi innréttingum og parketlögðum gólfum. Íbúðin er björt og opin.

Eitthvað er það á reiki hvað íbúðin er stór því hún er skráð 88,5 fm en samkvæmt samþykktum teikningum er hún 123,4 fm.

Húsgögnum er raðað fallega upp í íbúðinni og er hlýleikinn við völd þótt hún sé ekki yfirtroðin af húsgögnum. Myndaveggurinn fyrir ofan sófann í stofunni er til dæmis sérlega skemmtilegur og líflegur.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...