Íbúðirnar gerast ekki mikið vandaðri en þessi 177 fm íbúð í hjarta miðbæjarins. Fiskibeinamunstur prýðir parketið á gólfinu. Parketið er gegnheilt. Húsið var byggt 1931 og eru þrjár stofur í íbúðinni sem gerir hana að sérstaklega góðri samkvæmisíbúð.
Ljósir litir eru áberandi í íbúðinni og eru allar innréttingar hvítar og svo kemur granít við sögu í borðplötum.
HÉR, HÉR og HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.
Svona lítur húsið út að utan.
Inngangurinn er glæsilegur.
Stofan er björt og búin fallegum húsgögnum.
Fiskibeinaparketið setur svip sinn á íbúðina.
Borðstofan og stofan renna í eitt.
Í stofunni er líka rými fyrir sjónvarpið.
Eldhúsið er með hvítri sprautulakkaðri innréttingu og svörtum granít-borðplötum.
Flísarnar á milli efri og neðri skápa eru tímalausar.
Í eldhúsinu er pláss fyrir amerískan ísskáp.
Baðherbergið er í stíl við eldhúsið, hvít innrétting og svartar borðplötur.
Á baðherberginu er gluggi sem gerir herbergið bjart og sjarmerandi.
Svefnherbergið er huggulegt.