Hvernig er best að spara?

mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Sumt fólk virðist eiga auðveldara með að spara peninga en annað fólk. Enn aðrir virðast hreinlega alltaf eiga peninga þrátt fyrir að vera kannski ekki með hæstu launin. Fólki helst misvel á peningum. Þeir sem vilja reyna að bæta fjárhagsstöðu ættu að halda áfram að lesa. 

1. Ekki kaupa aukatækjatryggingu. Þess konar tryggingar eru óþarfa aukapeningur sem í rauninni fer í vaskinn. Kreditkortið sem þú borgaðir vöruna með er mjög líklega með einhverja tryggingu fyrir þig ef eitthvað kemur fyrir vöruna sem þú keyptir. Slepptu því þess vegna að taka aukatryggingu sem fyrirtæki bjóða upp á.

2. Borgaðu minna með því að prútta. Listin að prútta er ekki öllum gefin en fyrirtæki, svo sem símfyrirtæki eða fyrirtæki sem veita net- og sjónvarpsþjónustu eru líkleg til að gefa eftir  ef þú segist vilja skipta um fyrirtæki. Þá munu þau gefa þér tilboð svo að þú farir ekki yfir til samkeppnisaðila.

3. Deildu kostnaðinum með fjölskyldu og vinum. Það er margt sem þú getur gert til að deila kostnaði á milli fjölskyldumeðlima eða vina. Ef þú kaupir í matinn fyrir þig og vini þína, vertu viss um að þeir borgi sinn hlut. Vertu einnig í því símfyrirtæki sem þínir nánustu eru í svo að þú borgir sem minnst fyrir símtöl og smáskilaboð. Einnig geturðu lækkað kostnaðinn með því að búa með öðrum, hvort sem það er vinur eða maki.

4. Sparaðu meira og oftar. Í stað þess að eyða því sem þú átt eftir af laununum þegar allir reikningar eru greiddir settu þá peningana sem eftir eru á sparibók og láttu þá vaxa. Peningarnir endast lengur þannig.

5. Vertu alltaf með reiðufé á þér. Ef um neyðartilfelli er að ræða er gott að hafa smáaur til að grípa í. Einnig ef þú ert alltaf með reiðufé á þér heldurðu betur utan um það sem þú eyðir og eyðir ekki of miklu.

6. Vertu þinn eigin þúsundþjalasmiður. Ef eitthvað þarf að laga eða gera reyndu þá að gera það sjálfur en aflaðu þér upplýsinga fyrst, til dæmis á netinu, um hvernig skuli aðhafast. Þetta á sérstaklega við ef sama vandamálið kemur upp í sífellu svo sem þegar hjólið bilar eða annað.

7. Sjáðu heildarsamhengið. Ekki fallast á tilboð bara vegna þess að  þú hefur efni á því þennan mánuðinn. Horfðu á heildartöluna frekar og ekki taka raðgreiðslur fyrir hlutum sem þig langar í. Tilboðið lítur kannski vel út þegar þú sérð hvað raðgreiðslurnar virðast lágar á mánuði en horfðu á hvað varan kostar í heild sinni til að vera viss um hvort tilboðið sé í rauninni gott eða ekki. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál