Hönnunarparadís sem fær hjartað til að slá hraðar

Horft úr stofunni inn í eldhús og út í garð. …
Horft úr stofunni inn í eldhús og út í garð. Stóllinn eftir La Corbusier setur svip sinn á heimilið. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones

Í Paddington í Queensland í Ástralíu stendur afar heillandi einbýli þar sem viður og marmari mætast á heillandi hátt. Arkitektastofan Tim Stewart Architects hannaði húsið en stofan er þekkt fyrir afbragðshönnun.

Þótt grunnurinn í húsinu sé fallegur þá setja falleg húsgögn punktinn yfir i-ið eins og borðið frá Naguchi, Arco standlampinn og húsgögn eftir hinn þekkta La Corbusier. Í húsinu er sófasett eftir hann, stakir stólar og hægindastóllinn sem þykir vera einn klassískasti stóll veraldar.

Leðursófasett eftir La Corbusier prýðir stofuna og leðurstólarnir eru líka …
Leðursófasett eftir La Corbusier prýðir stofuna og leðurstólarnir eru líka eftir hann. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones
Stólarnir frá La Corbusier fara vel við panilklædda veggi.
Stólarnir frá La Corbusier fara vel við panilklædda veggi. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones
Borðið eftir Naguchi sómir sér vel í stofunni.
Borðið eftir Naguchi sómir sér vel í stofunni. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones
Marmarinn setur svip sinn á eldhúsið og ljósin sem eru …
Marmarinn setur svip sinn á eldhúsið og ljósin sem eru þrjú í röð gera heilmikið fyrir heildarmyndina. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones
Marmarinn nær aðeins fyrir ofan borðplötuna og blokkerar aðeins það …
Marmarinn nær aðeins fyrir ofan borðplötuna og blokkerar aðeins það sem er að gerast í eldhúsinu. Það er heppilegt svo allt dótið í eldhúsinu sjáist ekki þegar horft er inn í stofuna. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones
Stiginn er parketklæddur.
Stiginn er parketklæddur.
Fantaflott úrsýni er úr stofunni.
Fantaflott úrsýni er úr stofunni. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones
Guðdómlega fallegt baðherbergi. Speglaskápar setja svip sinn á heildarmyndina.
Guðdómlega fallegt baðherbergi. Speglaskápar setja svip sinn á heildarmyndina. Ljósmynd/Christopher Frederick Jones
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál