Hæðirnar gerast ekki mikið huggulegri en þessi sem er reyndar landsþekkt því kvikmyndin 79 af stöðinni var tekin upp í íbúðinni á sínum tíma. Íbúðin er 194,8 fm að stærð en húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni.
Íbúðin var tekin í gegn fyrir nokkrum árum og skipt um eldhúsinnréttingu, gólfefni og auk þess var baðherbergi endurnýjað.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.
Horft úr eldhúsinu fram á gang.
Baðherbergið er flísalagt með svörtum flísum.
Svörtu flísarnar koma vel út á baðherberginu.
Hansahillurnar sóma sér vel í þessu rými.
Borðstofan er opin og björt.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu sem er grá og sprautulökkuð.
Í stofunni er arinn og hátt til lofts.
Það kemur vel út að hafa sófana á móti hvor öðrum.
Gangurinn er með tekkhurðum.