Það væri ekki leiðinlegt að búa eins og Holly Golightly úr Breakfast at Tiffany's á besta stað í New York. Þeir sem luma á 972 milljónum geta nú gert það því íbúðin úr þessari klassísku kvikmynd er til sölu.
Íbúðin er fjögurra herbergja og í henni er hátt til lofts. Íbúðin er í glæsilegri byggingu sem innihélt eitt sinn fjórar mismunandi íbúðir en þær hafa nú verið sameinaðar í eina fjögurra hæða íbúð sem myndi henta stórri fjölskyldu vel.
Fleiri myndir og nánari upplýsingar um íbúðina má finna á heimasíðu fasteignasalans Peter Ashe.