Við Vatnsstíg 21 í Reykjavík stendur glæsileg 137 fm íbúð á besta stað á tólftu hæð. Úr íbúðinni er útsýni yfir Esjuna og svo eru einnig svalir til suðurs sem gera íbúðina afar heillandi.
Í íbúðinni er allt sérhannað og eru eikarinnréttingar í forgrunni ásamt svörtum granít-borðplötum. Á gólfunum er gegnheil eik og á baðherbergjunum sandlitaðar flísar sem skapa sérstaka spa-stemningu.
Íbúðin var byggð 2004 og var sérstaklega vandað til verka. Mikið er lagt upp úr lýsingu í eigninni og helstu þægindi í forgrunni.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.