Við Heiðarþing í Kópavogi stendur sjarmerandi parhús á einni hæð sem uppfyllir öll skilyrði um nútímaskipulag og þægindi. Húsið er 194 fm að stærð og var byggt 2007. Húsið er opið og bjart og það sem gerir það svo sjarmerandi er að gluggarnir garðmegin ná niður í gólf. Það er bara eitthvað við svona síða glugga sem ekki er hægt að standast.
Innréttingarnar í húsinu eru vel heppnaðar og er baðherbergið sérstaklega vel skipulagt með nægu skápaplássi. Hvítt sprautulakkað mætir eik á sjarmerandi hátt. Allir milliveggir í húsinu eru steyptir.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.