Ringo Starr selur hús sitt

Hús Ringos Starr er vægast sagt glæsilegt.
Hús Ringos Starr er vægast sagt glæsilegt. AFP/www.variety.com

Fyrrverandi Bítillinn Ringo Starr og eiginkona hans, Barbara Bach, eru að selja húsið sitt en það er ekki komið á hreint hversu mikið þau vilja fá fyrir eignina. Líklegt þykir þó að þau setji verðmiða upp á 2-4 milljarða króna á húsið sem er virkilega fallegt. Þessu er greint frá á heimasíðu Variety.

Húsið, sem er staðsett í Cranleigh, Surrey, keyptu þau skötuhjú árið 1999. Húsið hefur að geyma átta svefnherbergi, sjö baðherbergi, innisundlaug og bíósal svo eitthvað sé nefnt.

Húsið eru þau Starr og Bach að selja vegna þess að þau eru farin að eyða svo litlum tíma þar. „Þegar maður elst upp í kringum gráleitar götur Liverpool þá ímyndar maður sér ekki að maður gæti endað á grónum og þægilegum stað í Surrey,“ sagði Starr í viðtali sem birtist í Sunday Times. „Þetta er veröld sem er fjarri öllu sem ég þekki, en falleg og heillandi veröld engu að síður.“

Fleiri myndir af húsinu glæsilega má finna á Variety.com

Heima hjá Ringo Starr.
Heima hjá Ringo Starr. www.variety.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál