Sjáðu húsið sem Beyoncé og Jay Z misstu af

Skjáskot af DailyMail.co.uk. Húsið sem Svíinn Markus Pers­son keypti er …
Skjáskot af DailyMail.co.uk. Húsið sem Svíinn Markus Pers­son keypti er vægast sagt flott. dailymail.co.uk

Nýverið var greint frá því að Svíinn Markus Pers­son, maður­inn á bakvið tölvu­leik­inn Minecraft, hefði boðið bet­ur en hjónin Beyoncé og Jay-Z í dýrasta hús Beverly Hills. Perssons reiddi fram 8,8 milljarða króna og hreppti því húsið sem Beyoncé og Jay-Z höfðu látið sig dreyma um í þó nokkurn tíma.

Það er kannski ekkert skrýtið að Beyoncé og Jay-Z hafi dreymt um að eignast húsið því það er vægast sagt rosalegt. Fregnir herma að þau hafi verið mjög nálægt því að festa kaup á húsinu þegar Perssons yfirbauð þau.

Húsið inniheldur átta svefnherbergi og 15 baðherbergi en á hverju baðherbergi er sérstakt salerni sem kostar um 710 þúsund krónur hvert. Í stærsta svefnherberginu eru þá tvö risavaxin fataherbergi sem hefðu eflaust rúmað öll föt þeirra Bey og Jay leikandi. Í húsinu er þá einnig stór bíósalur, sælgætisherbergi og vínkjallari svo eitthvað sé nefnt.

Á heimasíðu Daily Mail má sjá fleiri myndir af húsinu.

Yfirbauð Jay-Z og Beyoncé

Beyoncé fær ekki að slaka á í þessari sundlaug í …
Beyoncé fær ekki að slaka á í þessari sundlaug í bráð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál