Innanhússarkitektinn Berglind Berndsen breytti íbúð við Vindakór í Kópavogi með sniðugum lausnum. Hún parketlagði íbúðina með glæsilegu parketi frá Birgisson, málaði allt í gráum tón, fékk tæki frá Smith & Norland, fékk Klöru Thorarensen í Heimahúsinu til að hjálpa sér að innrétta íbúðina. Öll gluggatjöld koma frá Vogue, rúmin eru frá Betra bak og svo kom hönnuðurinn Ingibjörg Hanna með rúmföt og veggskraut frá Ihanna home. Hægt er að skoða íbúðina nánar á vindakor.is