Við Hofsvallagötu í Reykjavík stendur hugguleg 202 fm hæð á besta stað. Húsið er steinsteypt og var byggt 1949. Það var hannað af Ágústi Pálssyni og hefur íbúðin verið töluvert endurnýjuð.
Búið er að opna eldhúsið inn í stofuna þannig að það myndist skemmtileg stemning í þessu alrými. Í eldhúsinu er eyja með góðu vinnuplássi og er eldavélin sjálf í eyjunni. Íbúðin er parketlögð og virkilega vel skipulögð.
HÉR er hægt að skoða hæðina nánar.