Sir Arnar Gauti breytir baðherbergi

Svona lítur baðherbergið út eftir að Arnar Gauti tók það …
Svona lítur baðherbergið út eftir að Arnar Gauti tók það í gegn.

„Ég á yndisleg vinahjón sem eru bæði sjúklega busy, hann er markaðssnillingur & hún lögfræðingur. Ég bý c.a. 6 mínútum frá þeim og því eiga þau það til að bjóða mér yfir í mat sem er super þar sem þau eru höfðingjar heim að sækja.  Eitt af þessum skiptum fóru þau með mig inná baðherbergi og tilkynntu mér að þau væru ekki að höndla útlitið á því. Spurningin sem ég fékk var „Arnar Gauti hvað getum við gert sem gerir þetta stylish?”  Svarið var djarft en einfalt af minni hálfu, FULL BLACK,“ segir Arnar Gauti Sverrisson á bloggi sínu sem hann opnaði í gær sem heitir Sir Arnar Gauti.

Hér fyrir neðan eru nákvæmar lýsingar á því hvernig hann bar sig að þegar hann breytti baðherberginu. Mesta breytingin er náttúrlega að mála flísarnar svartar og skipta um spegil á baðinu.

„Það verður að byrja á því að hreinsa flísarnar með góðri sápu til að ná af allri húðfitu, síðan grunnuðum við allt draslið & fórum 3 umferðir með svart mattri málningu með gljástig 5% sem er pínu brjálæði varðandi þrif en reynslan hefur sýnt að það var ekkert að því að hafa hana svona matta.“

Before3

Við máluðum innréttinguna líka & splæstum á hana flottum messing höldum í stíl við alla aðra skrautmuni sem við völdum þarna inn.

Spegillinn, stigahillan & svarti speglaskápurinn voru keypt í IKEA. Að lokum skreyttum við með fallegum munum sem þau fengu sér eða áttu fyrir.  Það gladdi mitt auðmjúka hjarta að ná að klára þetta með þeim þar sem ánægja þeirra leyndi sér ekki.  Það besta er að þessi yndislegu hjón héldu að þetta myndi kosta nokkur hundruð þúsund en endaði í um 70.000 kr fyrir eitt nýtt baðherbergi.

after1

Skrautmunirnir settu endapunktinn á þetta

after3

Skemmtilegt hvernig Hugsuðurinn heldur uppi skápnum

after2

after4

Svona leit baðherbergið út áður.
Svona leit baðherbergið út áður.
Baðherbergið var frekar einfalt og látlaust áður.
Baðherbergið var frekar einfalt og látlaust áður.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál