Griffith og Banderas selja íburðarmikið húsið

Melanie Griffith og Antonio Banderas eru að selja húsið.
Melanie Griffith og Antonio Banderas eru að selja húsið. variety.com/ AFP

Leikararnir Melanie Griffith og Antonio Banderas sóttu um skilnað frá hvort öðru í fyrra eftir 18 ára hjónaband. Nú hafa þau sett heimili sitt á sölu en húsið er afar íburðarmikið.

Húsið, sem er í Kaliforníu, er 1400 fermetrar og ásett verð er 2,2 milljarðar krónur. Húsið hefur að geyma sjö svefnherbergi, sjö stór baðherbergi og þrjú minni baðherbergi, upptökuver, líkamsræktarstöð og sundlaug svo eitthvað sé nefnt. Þessu var greint frá á Variety.

Griffith og Banderas keyptu húsið árið 1999 á 571 milljón króna. Seinna keyptu þau húsið við hliðina á og létu rífa það, þannig voru þau komin með stærðarinnar lóð við húsið.

Sundlaugin í garðinum er í algjöru skjóli.
Sundlaugin í garðinum er í algjöru skjóli. variety.com
Melanie Griffith og Antonio Banderas eru með skrautlegan stíl.
Melanie Griffith og Antonio Banderas eru með skrautlegan stíl. variety.com
Melanie Griffith og Antonio Banderas hafa búið hér frá árinu …
Melanie Griffith og Antonio Banderas hafa búið hér frá árinu 1999. variety.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál