Dýrasta íbúð landsins komin á sölu

Horft inn í eldhúsið.
Horft inn í eldhúsið.

Við Vatnsstíg 16-18 stendur 136 fm á 6 hæð. Það sem vekur athygli er að 95 milljónir eru settar á íbúðina sem segir að fermeterinn er á yfir 700.000 kr. Íbúðirnar í húsinu við Vatnsstíg 16-18 þykja vandaðar og góðar en í húsinu býr mikið af efnuðu fólki.

Sigurður Gísli Pálmason.
Sigurður Gísli Pálmason. Ljósmynd/Sarah Wilson


Á efstu hæðinni býr Sigurður Gísli Pálmason fjárfestir í 269 fm íbúð sem er næststærsta íbúð hússins. Stærsta íbúð hússins er 312 fm að stærð en hún er í eigu Bjargar Bergsveinsdóttur en hún á tvær íbúðir í húsinu. Hin íbúðin í hennar eigu er 136 fm og er sú íbúð á 10 hæð.

Skúli Eggert Sigurz lögmaður býr í húsinu og það gerir líka Valgeir Jakob Flosason útgerðarmaður sem er hvað þekktastur fyrir að hafa verið eigandi Stíms ehf. Kristín Ingólfsdóttir og eiginmaður hennar, Einar Sigurðsson, eiga íbúð í húsinu. Edda Heiðrún Backman á íbúð í húsinu og líka Pétur Þór Halldórsson eigandi skor.is.

Edda Heiðrún Backman.
Edda Heiðrún Backman. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Íbúðin sem nú er til sölu er sem fyrr segir á 6 hæð en verðið á íbúðunum hækkar í flestum tilfellum eftir því sem ofar dregur. Íbúðin er vel búin vönduðum innréttingum, gegnheilu parketi og eru baðherbergin tvö flísalögð. Í íbúðnni eru tvö svefnherbergi.

HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.

Stofan og eldhúsið renna saman í eitt.
Stofan og eldhúsið renna saman í eitt.
Baðherbergið er flísalagt með ljósum innréttingum.
Baðherbergið er flísalagt með ljósum innréttingum.
Úr íbúðinni er stórkostlegt útsýni.
Úr íbúðinni er stórkostlegt útsýni.
Horft inn í stofuna.
Horft inn í stofuna.
Eldhúsið er með ljósri viðarinnréttingu.
Eldhúsið er með ljósri viðarinnréttingu.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál