Gullhúðað kynlífstól á 2,5 milljónir króna

Þetta tól frá Coco de Mer kostar 2,5 milljónir króna.
Þetta tól frá Coco de Mer kostar 2,5 milljónir króna. www.coco-de-mer.com

Kynlífsvöruverslunin Coco de Mer selur aðeins það besta að því er virðist. Þeirra nýjasta og jafnframt dýrasta tól kostar skildinginn eða um 2,5 milljónir króna, hvorki meira né minna.

Kynlífstólið er gullhúðað 18 karata gulli og heitir Nell Gwyn, eftir hjákonu Charles II Englandskonungs. Tólið var sett á markað í tilefni af 14 ára afmæli verslunarinnar. Það hefur fimm hraðastillingar og „lætur vel að þínum allra persónulegustu stöðum,“ samkvæmt heimasíðu verslunarinnar.

En þeir sem eiga ekki 2,5 milljónir til að spandera í kynlífstól geta þá fengið samskonar tól án gullhúðar á 45.000 krónur.

Það er eins gott að tólið virki sem skildi.

Þetta tól er aðeins ódýrara en það gullhúðaða og kostar …
Þetta tól er aðeins ódýrara en það gullhúðaða og kostar 45.000 krónur. www.coco-de-mer.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál