Heitasti staðurinn á höfuðborgarsvæðinu er án efa Fossvogurinn. Þar er einfaldlega betra veður en annarsstaðar.
Við Haðaland í Fossvogi er komið á sölu glæsilegt „seventís“ hús sem endurnýjað hefur verið að hluta til. Húsið er í þessum retró-stíl sem er svo heillandi og er málað í þessum „seventís“ rauða lit sem var svo vinsæll á áttunda áratugnum.
Garðurinn í kringum húsið er einstaklega glæsilegur en búið er að girða hann af með vönduðu grindverki úr harðviði og svo er risastór verönd með heitum potti og öllum þægindum sem hægt er að hafa í svona garði.
Húsið er 255 fm að stærð og var byggt 1973. HÉR er hægt að skoða það nánar.