Ekkert hönnunarslys

Það er ekki á hverjum degi sem heimili er innréttað og það er ekkert á heimilinu sem betur mætti fara. Í þessu tilfelli er það mögulega vegna þess að tvær súperarkitektar sameinuðu krafta sína eða Amy Beaumont hjá Knob Modern Design og Joel Contreras hjá ContraMark Design.

Húsið er í Phoenix í Arizona og var ekkert til sparað þegar hráefni var valið. Á gólfunum er parket með fiskibeinamunstri en í eldhúsinu er innréttingin að hluta til kolsvört og að öðru leyti hvítsprautulökkuð. Á borðplötunum er marmari sem setur svo sannarlega svip sinn á eldhúsið.

Svarti liturinn er töluvert áberandi en þar leikur hvítur litur líka stórt hlutverk ásamt við og múrsteinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál