Það eru ekki margar 18 ára gamlar stúlkur sem búa í einbýlishúsi með sundlaug. Kylie Jenner hugsar stórt en hún var að flytja inn í glæishús í Kaliforníu. Húsið er staðsett í Calabasas sem er skammt frá strandbænum Malibu.
Í síðustu viku var Jenner iðin við að birta myndir af nýja húsinu á Instagram og á Snapchat. Hún er himinlifandi með húsið sem er ekkert skrýtið því í því eru fimm herbergi, sex baðherbergi, líkamsræktarherbergi, bíóherbergi og sundlaug.
Hún ætlar þó ekki að búa þarna ein því kærastinn hennar, hann Tyga, ætlar að flytja inn með henni.
Jenner hefur áhuga á því að búa sér fallegt heimili og er því búin að ráða Jeff Andrews innanhússarkitekt til þess að hjálpa sér að innrétta slotið. Andrews þykir hafa einstaka hæfileika þegar kemur að því að innrétta og eins og ungfrú Jenner er þekkt fyrir þá kýs hún aðeins það besta. Þess vegna valdi hún hann. Það verður spennandi að fá að sjá hvernig þetta þróast því ef við þekkjum ungfrúna rétt þá mun hún deila myndum af herlegheitunum á Instagram.