Hönnunarhöll framkvæmdastjóra Skeljungs til sölu

Að innan er húsið hannað af Rut Káradóttur.
Að innan er húsið hannað af Rut Káradóttur. www.fastborg.is

Framkvæmdastjóri Skeljungs, Ingunn Elín Sveinsdóttir, og eiginmaður hennar, Stefán Magnússon, hafa sett glæsilegt hús sitt á sölu. Húsið er afar smekklegt og fallega innréttað en hönnunarhúsgögn og listaverk prýða alla króka og kima hússins. Hönnuðurinn Rut Káradóttir sá um innanhússhönnunina.

Húsið er 320 fermetrar og stendur við Víðigrund í Kópavogi. Ásett verð er 89,9 milljónir, fasteignasalan Borg sér um söluna.

„Glæsilegt einbýlishús að Víðigrund 45, neðst í dalnum á mótum Kópavogs og Fossvogsdals, á einum veðursælasta stað höfuðborgarsvæðisins. Húsið er 320,7 fermetra steinsteypt hús á tveimur hæðum og tvöfaldur sérstæður bílskúr sem byggður var 2009. Að innan er húsið hannað af Rut Káradóttur innanhússarkitekt og allt sérstaklega glæsilegt,“ segir á fasteignavef mbl.is.

„Íbúðin sjálf er 274,2 fermetrar á tveimur hæðum og bílskúrinn er 46,5 fermetrar. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, rúmgott eldhús, borðstofa, stofa, hol, anddyri, þvottahús, hobbíherbergi, studio-íbúð og sérstæður bílskúr.“

Listaverk og hönnunarhúsgögn ráða ríkjum.
Listaverk og hönnunarhúsgögn ráða ríkjum. www.fastborg.is
Í eldhúsinu er stór eyja með granítborðplötum.
Í eldhúsinu er stór eyja með granítborðplötum. www.fastborg.is
Elhúsið er opið og rúmgott.
Elhúsið er opið og rúmgott. www.fastborg.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál