Julia Roberts selur „látlausu“ íbúðina

Julia Roberts er að selja íbúðina sína.
Julia Roberts er að selja íbúðina sína. www.6sqft.com

Leikkonan Julia Roberts hefur nú sett New York-þakíbúðina sína á sölu. Íbúðin er á besta stað í Greenwich Village og ásett verð er 611,7 milljónir króna samkvæmt fasteignavef 6sqft.com. Roberts og eiginmaður hennar, Danny Moder, keyptu íbúðina árið 2010 á 530 milljónir króna.

Þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi eru í íbúðinni ásamt rúmgóðri stofu og stórum palli en íbúðin er nokkuð látlaus miðað við þær eignir sem eru yfirleitt í eigu Hollywood-leikara.

Þetta er ekki eina fasteignin sem Roberts er með á sölu þessa stundina því hún á glæsilegt hús á Hawaii sem hefur verið á sölu síðan í apríl á þessu ári.

Ju­lia Roberts sel­ur Hawaii-húsið

Íbúðin er látlaus miðað við þær eignir sem eru yfirleitt …
Íbúðin er látlaus miðað við þær eignir sem eru yfirleitt í eigu Hollywood-leikara. www.6sqft.com
Það er glæsilegt útsýni frá svölunum.
Það er glæsilegt útsýni frá svölunum. www.6sqft.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál