Birta Björnsdóttir fatahönnuður og Jón Páll húðflúrari og listamaður hafa sett einbýlishús sitt við Miðstræti á sölu.
Hjónin hafa gert heilmikið fyrir húsið, látið sprautulakka eldhúsinnréttinguna, breyta baðherbergjum og svo hafa þau gert garðinn í kringum húsið mjög vistlegan. Húsið er bárujárnsklætt að utan og úr timbri. Húsið er 130 fm að stærð og það eru settar 69 milljónir. Hús í þessari götu eru mjög dýr en þess má geta að Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir búa í einbýlishúsi í sömu götu.
Húsið var byggt 1909. HÉR er hægt að skoða það nánar.