Hjörtu innréttinga-perverta eiga það til að taka aukaslag þegar þeir rekast á heimili sem gleðja augað. Í þessu heimili í Melbourne í Ástralíu er sko á nægu að taka. Hér er ekkert herbergi, ekkert skúmaskot né rými sem ekki stenst kröfur þessa vandaða hóps.
Innréttingin í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð en „Wow-faktorinn“ er án efa skálögðu flísarnar á milli skápanna og eyjan sem er létt - en á sama hátt vel byggð.
Á gólfunum er gegnheil eik en þar er líka svona líka Sjálfstæðisblátt gólfteppi sem setur svip sinn á stigaganginn. Svona blá gólfteppi eiga eftir að sjást mun meira inni á heimilum og þess má geta að svona teppi eru ekki bara fyrir hörðustu hægri-menn og konur. Þetta er fyrst og fremst fallegt og hlýlegt og skapar stemningu inni á heimilinu.
Chan Architecture hannað húsið að innan.
Það er mjög gott vinnupláss í eldhúsinu.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Eyjan er frekar létt eins og sést á myndinni.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Físarnar í eldhúsinu eru fáránlega smart.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Flísarnar á baðherberginu koma ákafalega vel út í rýminu.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Baðherbergið er státar af einstöku skápaplássi.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Á þessu baðherbergi er svört innrétting.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Hér sést hvernig sturtan og baðinnréttingin mætast.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Svona á að búa um.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Hjónaherbergið er einstaklega huggulegt.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Það er ekki bara hægra-fólk sem fílar svona blá gólfteppi.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Bláa gólfteppið er guðdómlegt.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Veröndin fyrir utan er skjólgóð og hugguleg.
Ljósmynd/Folded Bird Photography
Garðurinn er vel skipulagður.
Ljósmynd/Folded Bird Photography